Esjuskálinn hefur verið opnaður í Baulunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Baulan er verslun og veitingastaður við þjóðveg eitt í Borgarfirði en nú hefur fyrirtækið Esjuskálinn tekið við rekstrinum. Fríða Birna Þráinsdóttir er eigandi Esjuskálans og þar af leiðandi nýr eigandi Baulunnar. Hún er frá Laugarbakka í Miðfirði en býr á Kjalarnesi ásamt manni sínum og tveimur dætrum. Hún segir Bauluna þess vegna færa sig nær heimaslóðum. ,,Við erum að standa í þessu bara við fjölskyldan; ég, dætur mínar tvær og maðurinn minn. Eldri dóttir mín verður núna verslunarstjóri á Kjalarnesinu en ég verð mest hér í Baulunni. Yngri dóttir mín er 16 ára og verður að vinna á báðum stöðum í sumar. Maðurinn minn er svo meira í sendiferðum og húsvarðarstörfum. Ég er svo með tíu starfsmenn í Baulunni núna sem er eiginlega bara vinahópur héðan úr sveitinni. Svo er aldrei að vita nema ég taki Staðarskála næst og Hvammstanga, en ég er komin hálfa leið heim núna,“ segir Fríða og brosir.\r\n\r\n<strong>Baulan verður alltaf Baulan</strong>\r\n\r\nFríða segist ekki hafa þurft að breyta miklu í húsnæðinu nema aðstöðu fyrir starfsfólk en nafnið segir Fríða helstu breytinguna. Segir hún þó ástæðu vera fyrir þeirri breytingu. ,,Við þurftum að fara í framkvæmdir í kjallaranum, setja inn vörulyftu og bæta vinnuaðstöðuna á lagernum fyrir starfsfólkið, annars er ekki búið að breyta neinu sem viðskiptavinurinn sér, nema kannski nafninu. Borgfirðingar eru náttúrulega ekki mjög sáttir við heitið Esjuskálinn en þetta verður alltaf Baulan og húsnæðið er merkt að framan sem Esjuskálinn og Baulan. Ég vildi tengja starfsemina báðum nöfnum til að fólk viti hvar og við hvern það er að versla. Við erum auðvitað búin að skapa okkur sess sem Esjuskálinn á Kjalarnesi og höfum þá sérstöðu að vera með aðeins öðruvísi vöruúrval. Ég flyt inn fullt af vörum sjálf en hjá okkur má t.d. finna öðruvísi gosdrykki og nammi. Svo pöntum við líka inn varahluti í vélar fyrir bændur í kring en við viljum þjónusta þá vel svo sú þjónusta er einnig í boði í Baulunni,“ segir Fríða sem vill leggja áherslu á gott vöruúrval og að í versluninni sé hægt að kaupa það sem gleymdist í Bónus, eins og hún orðar það.\r\n\r\n<strong>Matur, vínveitingar og boltinn</strong>\r\n\r\nFríða segir reksturinn fara vel af stað en þau tóku við í byrjun júní. ,,Þetta fer æðislega vel af stað en við fengum húsið fyrsta júní og opnuðum óformlega þremur dögum síðar. Við erum ekki ennþá búin að opna formlega því ég vil hafa alveg allt tilbúið fyrir það en núna er þetta loksins að smella. Við opnuðum eldhúsið fyrir viku síðan, allt er orðið vel merkt og vel þrifið. Við erum ennþá að þróa matseðilinn en ég er með samlokur, langlokur og vefjur sem við smyrjum sjálf og svo mun ég vera með pítsur og þessar vinsælu kótelettur sem margir eru að biðja um. Ég er svo með kjötsúpu og við ætlum að vera með heimilismat sem mat dagsins. Svo langar mig að setja upp sjónvörp til að sýna leiki og jafnvel vera með einhverja viðburði í kringum það en við erum náttúrulega með vínveitingarleyfi, svo það er aldrei að vita hvað manni dettur í hug,“ segir Fríða að lokum.",
  "innerBlocks": []
}