Fréttir

true

Regnbogafánar við ráðhús Borgarbyggðar

Í dag og á komandi dögum verður regnbogafánanum flaggað við ráðhús Borgarbyggðar. Það er gert til minningar um fórnarlömb voðaverksins í Noregi. Þetta kemur fram á heimasíðu sveitarfélagsins. Þar kemur einnig fram að mikilvægt sé að sýna stuðning í verki með hinsegin samfélaginu, LGBTQI+ og nú sem aldrei fyrr nauðsynlegt að minna á samstöðu um…Lesa meira

true

Eldur var slökktur í gámi í Borgarnesi í nótt

Vegfarandi tilkynnti um eld í gámi við húsnæði Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi í nótt. Að sögn Bjarna Kr. Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra er ekki vitað nákvæmlega um eldsupptök, en gámurinn er mikið skemmdur og allur skakkur eftir hitann sem myndaðist. Það vildi til happs að þessa nótt var stafalogn því drjúgur eldsmatur var í grennd við…Lesa meira

true

Áminning um kartöflumyglu

Þar sem kartöflugrös eru nú farin að spretta upp í kartöflugörðum landsmanna vill Matvælastofnun ítreka varúðaorð um að fylgjast vel með kartöflugarðinum í sumar. „Mjög mikilvægt er að almenningur taki strax upp plöntur sem sýna einkenni smits og fargi þeim til að hindra útbreiðslu smits. Veðurfar ræður miklu um það hvort sjúkdómurinn nái sér á…Lesa meira

true

Nr 4 Umhverfing að hefjast

Á morgun laugardaginn 2. júlí verður myndlistarsýningin Nr 4 Umhverfing opnuð í Dölum, á Vestfjörðum og á Ströndum. Alls sýna 127 sýnendur á þessu víðfeðma svæði. Það er Akademía skynjunarinnar sem stendur fyrir sýningunni og verkin verða mest í þéttbýliskjörnum en einnig víðsvegar úti í náttúrunni. Verða þau ákvörðuð með GPS punktum og merkingum þar…Lesa meira

true

Naloxone nefúði verður aðgengilegur og gjaldfrjáls

Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítalann vinnur að því að gera lyfið Naloxone í nefúðaformi aðgengilegt um allt land, þannig að tilteknir aðilar hafi það til reiðu þegar á þarf að halda. Lyfið er notað þegar þörf er á tafarlausri neyðarmeðferð vegna ofneyslu ópíóða sem valdið getur öndunarstoppi og dauða. Landspítali bauð lyfið út fyrr í…Lesa meira

true

LbhÍ vinnur tillögur sem efla eiga kornrækt

Landbúnaðarháskóla Íslands hefur verið falið að vinna drög að aðgerðaáætlun til eflingar kornræktar hér á landi. Verður hún unnin að beiðni Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í kjölfar funda með sérfræðingum á sviði kornræktar við Landbúnaðarháskólann. „Mikilvægi innlendrar kornræktar hefur aukist verulega í takti við aukið vægi fæðuöryggis síðustu misseri. Einnig kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar…Lesa meira

true

Samantekt um lax- og silungsveiði 2021

Hafrannsóknastofnun hefur nú birt yfirlit yfir lax- og silungsveiði hér á landi árið 2021.  Þar kemur fram að heildarfjöldi stangveiddra laxa á síðasta ári var 36.461 sem var 8.663 löxum, eða 19,2% minni veiði, en árið 2020. Af einstökum landshlutum þá var 13,3% aukning í veiði milli ára í ám á Reykjanesi, 7,4% hér á…Lesa meira

true

Írskir dagar formlega byrjaðir

Klukkan 14 í dag var bæjarhátíðin Írskir dagar á Akranesi formlega sett. Sævar Freyr bæjarstjóri ávarpaði þá hóp leikskólabarna sem mættur voru á Akratorg og setti hátíðina. Þá kíkti Lína langsokkur í heimsókn og söng og sprellaði. Dagskráin er því hafin og stendur fram á sunnudag, eins og lesa má um í auglýsingu í Skessuhorni…Lesa meira

true

Boðað er að breytt verði meingölluðum kosningalögum

Dómsmálaráðuneytið hefur kynnt í Samráðsgátt stjórnvalda áform um að endurskoða verði ný kosningalög sem reynst hafa meingölluð. Nú stendur meðal annars til að taka til endurskoðunar ákvæði um hæfi kjörstjórna. Þau hæfisskilyrði gerði sveitarfélögum, sérstaklega þeim fámennari, lífið leitt í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga síðasta vor, eins og kom fram í fréttum fjölmiðla á fyrri hluta árs.…Lesa meira

true

Sífellt fleiri fjallvegir að opnast

Umferðarþjónusta Vegagerðarinnar, sem hefur aðsetur á Ísafirði, var að senda frá sér Hálendiskort númer 7 í sumar. Gildir kortið frá miðvikudeginum 29. júní. Helstu breytingar frá síðasta korti eru þær að vegurinn um Þorskafjarðarheiði (608) er opinn fyrir alla umferð og Steinadalsheiði (690) er fær bílum með fjórhjóladrif. Loks er vegurinn yfir Arnarvatnsheiði (F578) opinn…Lesa meira