
Stafalogn var í Borgarnesi í nótt, en myndin var tekin um svipað leyti og slökkvilið var kallað að Engjaási. Ljósm. gj.
Eldur var slökktur í gámi í Borgarnesi í nótt
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegfarandi tilkynnti um eld í gámi við húsnæði Steypustöðvarinnar við Engjaás í Borgarnesi í nótt. Að sögn Bjarna Kr. Þorsteinssonar slökkviliðsstjóra er ekki vitað nákvæmlega um eldsupptök, en gámurinn er mikið skemmdur og allur skakkur eftir hitann sem myndaðist. Það vildi til happs að þessa nótt var stafalogn því drjúgur eldsmatur var í grennd við gáminn. Bíll stóð í einungis tveggja metra fjarlægð, byggingar hefðu mögulega verið í hættu og plastkúlur sem voru í grennd við gáminn hefðu getað orsakað mikinn eld á svæðinu.",
"innerBlocks": []
}