{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Umferðarþjónusta Vegagerðarinnar, sem hefur aðsetur á Ísafirði, var að senda frá sér Hálendiskort númer 7 í sumar. Gildir kortið frá miðvikudeginum 29. júní.\r\n\r\nHelstu breytingar frá síðasta korti eru þær að vegurinn um Þorskafjarðarheiði (608) er opinn fyrir alla umferð og Steinadalsheiði (690) er fær bílum með fjórhjóladrif. Loks er vegurinn yfir Arnarvatnsheiði (F578) opinn fyrir 4x4 milli Arnarvatns stóra og Norðlingsfljóts.",
"innerBlocks": []
}