Naloxone nefúði verður aðgengilegur og gjaldfrjáls
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Heilbrigðisráðuneytið í samvinnu við Landspítalann vinnur að því að gera lyfið Naloxone í nefúðaformi aðgengilegt um allt land, þannig að tilteknir aðilar hafi það til reiðu þegar á þarf að halda. Lyfið er notað þegar þörf er á tafarlausri neyðarmeðferð vegna ofneyslu ópíóða sem valdið getur öndunarstoppi og dauða. Landspítali bauð lyfið út fyrr í vor sem var forsenda þess að unnt væri að dreifa því gjaldfrjálst til notenda. Frá og með 1. júlí mun heilbrigðisráðuneytið greiða allan kostnað vegna lyfsins sem þar með verður notendum að kostnaðarlausu.",
"innerBlocks": []
}
Naloxone nefúði verður aðgengilegur og gjaldfrjáls - Skessuhorn