Samantekt um lax- og silungsveiði 2021

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hafrannsóknastofnun hefur nú birt yfirlit yfir lax- og silungsveiði hér á landi árið 2021.  Þar kemur fram að heildarfjöldi stangveiddra laxa á síðasta ári var 36.461 sem var 8.663 löxum, eða 19,2% minni veiði, en árið 2020. Af einstökum landshlutum þá var 13,3% aukning í veiði milli ára í ám á Reykjanesi, 7,4% hér á Vesturlandi og 1,7% á Norðurlandi vestra. Minni veiði var hins vegar í ám á Vestfjörðum, Norðurlandi eystra, Austfjörðum og Suðurlandi.\r\n\r\nFram kemur að 19.589 löxum var sleppt á síðasta ári, en það jafngildir 53,7% veiðinnar. Af stangveiddum löxum voru 28.705, eða 78.7%, laxar með eins árs sjávardvöl og 7.756 laxar með tveggja ára sjávardvöl eða lengri, en þeir kallast einu orði stórlaxar. Alls var þyngd landaðra laxa í stangveði 46,8 tonn.\r\n\r\nÍ fyrra voru skráðir 43.389 urriðar í stangveiði en hlutfall urriða sem var sleppt var 33,1% sem er hér um bil sama hlutfall og var sleppt árið 2020. Alls voru skráðar 30.726 bleikjur í stangveiði árið 2021. Hlutfall bleikju sem var sleppt var 45,2% sem var mun hærra hlutfall en árið áður.\r\n\r\nVeiði í net var 4.574 laxar sumarið 2021 og var heildaraflinn 12,5 tonn. Eins og undanfarin ár var netaveiði mest stunduð í stóru ánum á Suðurlandi; Ölfusá-Hvítá og Þjórsá en þar veiddust 4.344 laxar í net. Lítið var um netaveiði í öðrum landshlutum. Skráð silungsveiði í net á landinu öllu var 5.002 urriðar og 25.059 bleikjur.\r\n\r\nAldrei hafa veiðst fleiri hnúðlaxar í ám hér á landi en sumarið 2021 en þá voru skráðir samtals 339 hnúðlaxar í stang- og netaveiði. Í stangveiði voru skráðir 323 hnúðlaxar og 16 skráðir í netaveiði. Vitað er um hnúðlaxa úr fleiri ám sem ekki voru skráðir í veiðibækur eða skilað gögnum um.",
  "innerBlocks": []
}
Samantekt um lax- og silungsveiði 2021 - Skessuhorn