Magnús Eggertsson bóndi í Ásgarði í Borgarfirði í kornskurði í byrjun september 2016. Ljósm. úr safni/mm.

LbhÍ vinnur tillögur sem efla eiga kornrækt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Landbúnaðarháskóla Íslands hefur verið falið að vinna drög að aðgerðaáætlun til eflingar kornræktar hér á landi. Verður hún unnin að beiðni Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra í kjölfar funda með sérfræðingum á sviði kornræktar við Landbúnaðarháskólann. „Mikilvægi innlendrar kornræktar hefur aukist verulega í takti við aukið vægi fæðuöryggis síðustu misseri. Einnig kemur fram í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur að unnin verði aðgerðaáætlun um eflingu kornræktar á kjörtímabilinu,“ segir í tilkynningu. Egill Gautason, Helgi E. Þorvaldsson, Hrannar S. Hilmarsson og Ragnheiður I. Þórarinsdóttir rektor mynda starfshópinn af hálfu Landbúnaðarháskólans.\r\n\r\n<strong>Kanna fýsileika kornsamlags</strong>\r\n\r\n„Efling innlends kornmarkaðar er eitt stærsta viðfangsefni verkefnisins. Einnig verður skilgreind nauðsynleg uppbygging á sviði kynbóta, bútækni og aðlögun stuðningskerfa í takti við það sem þekkist erlendis. Fýsileiki innlends kornsamlags verður kannaður og skilgreindar þarfir á lágmarksbirgðum kornvöru í landinu.“ Þá kemur fram að vinnuhópurinn samanstendur af sérfræðingum á sviði landbúnaðar, kornræktar, viðskipta og verkfræði. Hópurinn mun kynna sér starfsemi, kerfi og eignarhald kornsamlaga á Norðurlöndum. Að auki verður skoðuð starfsemi innlendra samlaga í ólíkum landbúnaðargreinum.\r\n\r\n„Staðsetning væntanlegs samlags auk þurrkstöðva og korngeymslna er mikilvæg og því verður lögð áhersla á að finna sem hentugasta staðsetningu. Þar spilar inn í nálægð við framleiðendur, markaði, nýtingu jarðvarma og fleira. Kannað verður hvernig og hvort sé hægt að nýta fyrirliggjandi innviði sem best í þessu samhengi, svo sem þurrkstöðvar og minni geymslur sem eru nú þegar í rekstri.“ Vinna hefst við verkefnið í ágúst á þessu ári og stefnt er að henni ljúki í mars 2023 með lokaskýrslu.",
  "innerBlocks": []
}
LbhÍ vinnur tillögur sem efla eiga kornrækt - Skessuhorn