Fréttir

true

Stýrivextir hækkaðir um heilt prósentustig

Seðlabankinn tilkynnti í dag um enn eina hækkun stýrivaxta. Vextir verða nú hækkaðir um eitt prósentustig sem jafngildir 26,67% hækkun. Verða meginvextir stofnunarinnar nú, vextir á sjö daga bundnum innlánum, 4,75%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar stofnunarinnar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi verið nokkru meiri hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins en gert var ráð fyrir í…Lesa meira

true

Opið hús á starfsstöðvum Rarik

Síðastliðinn miðvikudag hélt Rarik upp á 75 ára afmæli fyrirtækisins. Opið hús var á völdum starfsstöðvum víðs vegar um landið. Starfsmenn Rarik tóku á móti gestum og kynntu aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað. Boðið var upp á kaffi, afmælistertu og aðrar veitingar auk þess sem afmælisfáni var dreginn að húni. Hér á Vesturlandi…Lesa meira

true

Flottur smálax í Viðbjóði

Laxveiðin fer ágætlega af stað víða og töluvert af laxi er að ganga í árnar. Hítará var með sex laxa opnun. Fyrsta hollið í Langá veiddi tvo laxa og eitthvað er komið af laxi í Haffjarðará.  Það veiddust 18 laxar í opnun Grímsár í Borgarfirði, tveggja ára lax og eins árs lax í bland. „Þetta…Lesa meira

true

Þrettán vilja verða sveitarstjóri Dalabyggðar

Umsóknarfrestur um starf sveitarstjóra Dalabyggðar rann út síðastliðinn mánudag. Stærstu mál framundan í sveitarfélaginu eru bygging íþróttamannvirkja og líklega einnig sameining sveitarfélaga. Um starfið sóttu 13 einstaklingar, en Hagvangur annast ráðningarferlið. Ekki liggja fyrir að svo stöddu nöfn umsækjenda, en Eyjólfur Ingvi Bjarnason oddviti Dalabyggðar er bjartsýnn á að það verði hægt að ganga frá…Lesa meira

true

Vel gengur með fjölbýlishúsin við Þjóðbraut

Byggingarfélagið Bestla er um þessar mundir með tvö fjölbýlishús í byggingu við Þjóðbraut 3 og Þjóðbraut 5 á Akranesi. Sigurbjörn Hallsson, eða Silli eins og hann er kallaður, er staðarstjóri Bestlu á Akranesi en hann hóf störf þar í október síðastliðnum. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti Silla í lok síðustu viku á vinnustaðinn til að forvitnast um…Lesa meira

true

Landsmót 50+ verður í Borgarnesi um helgina

Um næstu helgi verður haldið Landsmót 50+ haldið í Borgarnesi á vegum UMFÍ. Þar verður keppt í hinum ýmsu íþróttagreinum. Keppt verður í hefðbundum íþróttagreinum auk óvenjulegra greina eins og pönnukökubakstri og stígvélakasti. Blaðamaður Skessuhorns hitti að máli Sigurð Guðmundsson frá Hvanneyri sem er nú í óða önn að skipuleggja mótið fyrir hönd UMSB og…Lesa meira

true

Hvammssókn færði Reykholtskirkju kistuvagn að gjöf

Að morgni þjóðhátíðardagsins var stutt athöfn í Reykholtskirkju. Þá færðu fulltrúar Hvammssóknar í Norðurárdal Reykholtskirkju að gjöf nýjan kistuvagn. Um er að ræða vagn sem hægt er að draga sundur, og leggja saman, og er ætlaður til flutnings á líkkistum og á honum standa kisturnar við útfarir. Vagninn er á hjólum og klæddur smekklegu efni.…Lesa meira

true

Breytingar á lögum um lífeyrismál

Alþingi samþykkti 15. júní síðastliðinn frumvarp sem breytir lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Breytingin felur í sér lögfestingu þriggja atriða úr stuðningsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við lífskjarasamninga frá árinu 2019. Ber þar fyrst að nefna að lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð hækkar úr 12% í 15,5%. Í öðru lagi hækkar lágmarkstryggingavernd úr 1,4% á ári að meðaltali…Lesa meira

true

Veiðihús fyrir Reykjadalsá tekið að rísa

Á meðfylgjandi mynd er væntanlegt veiðihús fyrir Reykjadalsá í Borgarfirði sem Fiskræktar- og veiðifélag Reykjadalsár lætur byggja. Nýja húsið verður um 130 fm að stærð með þremur svefnherbergjum og svefnplássi fyrir sex. Það mun leysa af hólmi eldra veiðihús, A bústað, í landi Kjalvararstaða sem þykir ekki lengur standast kröfur um aðbúnað. Húsið er suðvestan…Lesa meira

true

Stórsigur ÍA kvenna gegn ÍH

Skagakonur tóku á móti ÍH í 2. deild kvenna í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Akranesvelli. Hugrún Elvarsdóttir kom gestunum yfir á áttundu mínútu leiksins þegar hún lagði boltann laglega í nærhornið fram hjá markmanni ÍA. Erla Karitas Jóhannesdóttir jafnaði metin á 24. mínútu þegar hún fékk boltann inn fyrir vörn ÍH…Lesa meira