Fréttir

true

Sumarfundur EFTA ríkjanna var haldinn í Borgarnesi

Í gær fór fram sumarfundur EFTA. Var fundurinn að þessu sinni haldinn í Borgarnesi, en dagskrá hans var bæði í húsnæði Menntaskóla Borgarfjarðar og í Englendingavík. „Áskoranir sem alþjóðaviðskiptakerfið stendur frammi fyrir vegna afleiðinga heimsfaraldursins og innrásar Rússlands í Úkraínu og yfirstandandi fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna voru til umfjöllunar á ráðherrafundi EFTA. Þá var fríverslunarviðræðum við Taíland…Lesa meira

true

Reiðhjólabændur halda í lengsta bændarúntinn

Reiðhjólabændur eru stærsta frjálsa hjólreiðafélag landsins með um 7.800 skráða félaga samkvæmt Facebook hópi félagsins. Bændur hafa það fyrir venju að fara í svokallaðan bændarúnt á þriðjudagskvöldum í viku hverri, og hjóla þá hringinn um Reykjavík. Þessa vikuna ætla 12 einstaklingar af sex þjóðernum og með mismikla reynslu af hjólreiðum að hjóla hringinn í kringum…Lesa meira

true

Fjöldi skemmtiferðaskipa með um 50 þúsund farþega

Í Grundarfjarðarhöfn í sumar eru bókaðar 43 komur skemmtiferðaskipa með um 50 þúsund farþega. Hægt er að sjá inn á veg Grundarfjarðarhafnar grundport.is hvaða dag og klukkan hvað skipin koma í höfn. Til að mynda má sjá að tvö skip eiga eftir að kíkja í heimsókn í júní. Mánudaginn 27. júní verður skemmtiferðaskipið Spirit Of…Lesa meira

true

Verulega er að draga úr atvinnuleysi

Skráð atvinnuleysi mældist 3,9% á landinu í maí og dróst saman um 0,6 prósentustig milli mánaða. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir því að atvinnuleysi dragist áfram saman í júní og verði á bilinu 3,5-3,8%. Atvinnuleysi dróst saman í öllum landshlutum en þó mest á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Mest er atvinnuleysi…Lesa meira

true

Tóku þátt í Sumarmóti SSÍ

Sumarmót Sundsambands Íslands fór fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði um helgina. Þar mætti besta sundfólk Íslands til keppni. Mótið eru fyrir stelpur 15 ára og eldri og stráka 16 ára og eldri. Sundfélag Akraness var með tíu keppendur á mótinu sem allir syntu vel og urðu í fjórða sæti í stigakeppninni. Fimm Akranesmet féllu um…Lesa meira

true

ÍA gerir samning við nýjan þjálfara í körfunni

Körfuknattleiksdeild ÍA hefur gert tveggja ára samning við Nebosja Knezevic sem þjálfara meistaraflokks karla og mun hann stýra liðinu í 2. deildinni á komandi tímabili. Ásamt því að þjálfa meistaraflokk karla mun Nebosja einnig sjá um yngri flokka þjálfun. Nebosja kemur til ÍA frá Skallagrími þar sem hann þjálfaði meðal annars meistaraflokk kvenna áður en…Lesa meira

true

Hluta Borgarbrautar í Borgarnesi verður lokað í sumar

Veitur hafa tilkynnt að fyrir dyrum standi umfangsmiklar framkvæmdir á hluta Borgarbrautar í Borgarnesi, stofngötu bæjarins. Ásamt Veitum koma að framkvæmdunum Rarik, Vegagerðin og Borgarbyggð. Verkið felst í endurnýjun fráveitulagna, hitaveitu- og vatnslagna ásamt endurnýjun yfirborðs götu og gangstíga á um 550 metra kafla Borgarbrautar, milli Böðvarsgötu og Egilsgötu. Verkefninu verður skipt upp í þrjá…Lesa meira

true

Breytingar á hjúskaparlögum

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á hjúskaparlögum nr. 31/1993 var nýlega samþykkt á Alþingi. Gerðar voru breytingar á ýmsum ákvæðum hjúskaparlaga svo sem varðandi undanþáguheimild vegna lágmarksaldurs til þess að stofna til hjúskapar, könnun hjónavígsluskilyrða og lögsögu í hjónaskilnaðarmálum, auk þess sem gerðar voru breytingar sem snúa að því að færa tiltekin verkefni frá ráðuneytinu til…Lesa meira

true

Rammaáætlun um virkjanakosti afgreidd á Alþingi

Alþingi samþykkti fyrir þinglok í síðustu viku þingsályktun um 3. áfanga rammaáætlunar, áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða. Þá voru einnig samþykktar breytingar á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, þess efnis að stækkanir á virkjunum sem þegar eru í rekstri verði undanþegnar málsmeðferð rammaáætlunar nema, eins og það er orðað í lögunum, „stækkunin feli í…Lesa meira

true

Íslandsmeistarar í holukeppni

Saga Traustadóttir úr GKG og Sigurður Bjarki Blumenstein úr GR eru Íslandsmeistarar í holukeppni í golfi. Úrslitin réðust á sunnudaginn á Hlíðavelli í Mosfellsbæ. Þetta er í annað sinn sem Saga fagnar þessum titli en fyrsti titill Sigurðar Bjarka á GSÍ mótaröðinni. Pamela Ósk Hjaltadóttir GM varð önnur í kvennaflokknum og Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK…Lesa meira