{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skráð atvinnuleysi mældist 3,9% á landinu í maí og dróst saman um 0,6 prósentustig milli mánaða. Þetta kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Stofnunin spáir því að atvinnuleysi dragist áfram saman í júní og verði á bilinu 3,5-3,8%. Atvinnuleysi dróst saman í öllum landshlutum en þó mest á Norðurlandi vestra og Vestfjörðum. Mest er atvinnuleysi á Suðurnesjum 6,6% en minnst á Norðurlandi vestra, 1,2%. Hér á Vesturlandi er atvinnuleysi 1,4% í röðum karla og 2,5% hjá konum. Atvinnuleysi náði hámarki í janúar í fyrra þegar það mældist 11,6% en því til viðbótar voru 1,2% í skertu starfshlutfalli á hlutabótaleið stjórnvalda, tímabundnu úrræði sem komið var á í kórónuveirufaraldrinum. Síðan þá hefur nær samfellt dregið úr atvinnuleysi.",
"innerBlocks": []
}