Reiðhjólabændur.

Reiðhjólabændur halda í lengsta bændarúntinn

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Reiðhjólabændur eru stærsta frjálsa hjólreiðafélag landsins með um 7.800 skráða félaga samkvæmt Facebook hópi félagsins. Bændur hafa það fyrir venju að fara í svokallaðan bændarúnt á þriðjudagskvöldum í viku hverri, og hjóla þá hringinn um Reykjavík. Þessa vikuna ætla 12 einstaklingar af sex þjóðernum og með mismikla reynslu af hjólreiðum að hjóla hringinn í kringum landið, nánar tiltekið frá og með miðvikudeginum 22. júní og til föstudagsins 24. júní. Leiðin sem hjóluð verður er um 1.400 kílómetrar.\r\n\r\nTilgangurinn með ferðinni er að vekja athygli á öryggi hjólreiðafólks í almennri umferð á Íslandi, eða öllu heldur skorti á því. Hópurinn vill gjarna virkja sem flest hjólreiðafólk til að taka þátt í ferðinni og láta í ljós stuðning sinn við málefnið með því að mæta hópnum í heimabyggð hvers og eins og hjóla samferða hópnum einhvern hluta leiðarinnar.\r\n\r\nLagt verður af stað frá Sævarhöfða 31 í Reykjavík, rétt við Elliðaárósa. Þar hafa Reiðhjólabændur sína bækistöð og sinna fjölmörgum verkefnum félagsins, frá þessari landfræðilegu miðju höfuðborgarsvæðisins. Til dæmis hafa undanfarnar vikur farið í söfnun á eldri og notuðum reiðhjólum, sem eru yfirfarin, lagfærð og svo gefin hælisleitendum og flóttafólki. Þeim sem vilja, er líka velkomið að slást í för með Reiðhjólabændum þegar hjólað er í gegnum helstu þéttbýlisstaðina á leiðinni. Stærstu staðirnir eru: Mosfellsbær, Borgarnes, Blönduós, Sauðárkrókur, Akureyri, Egilsstaðir, Höfn, Kirkjubæjarklaustur, Vík, Hvolsvöllur, Selfoss, Þorlákshöfn, Hafnarfjörður, Garðabær, Kópavogur og Reykjavík. „Þannig geta allir tekið þátt í þessum Heimsins lengsta bændarúnti,“ segir í tilkynningu.\r\n\r\nHópurinn hefur sett upp sérstaka viðburðasíðu á Facebook þar sem fréttir af ferðalaginu verða uppfærðar í rauntíma og myndefni deilt til frjálsra afnota. Þar má líka fylgjast með því hvernig ferðin gengur og hvenær hópurinn nálgast helstu þéttbýli á leiðinni, þar sem GPS tæknin verður nýtt til að sýna Íslandskort með „blikkandi depli“ á þeim stað þar sem hópurinn er hverju sinni. Áætlað er að ferðin taki u.þ.b 46 klukkustundir og meðalhraðinn verði nálægt 30 km/klst. „Óvant hjólreiðafólk þarf þó ekki að örvænta, hópurinn hjólar rólega þegar gestir hjóla með okkur og bætir svo tímatapið upp á hálendinu og á leið niður bröttustu brekkurnar. Hjólað er með boðsveitarfyrirkomulagi, líkt og gert var í Síminn Cyclothon keppninni sálugu og Bændarútan mun fylgja hópnum til að tryggja öryggið.",
  "innerBlocks": []
}
Reiðhjólabændur halda í lengsta bændarúntinn - Skessuhorn