Nebosja Knezevic ásamt Birki Guðjónssyni stjórnarmanni. Ljósm.af FB síðu Körfuknattleiksfélags ÍA.

ÍA gerir samning við nýjan þjálfara í körfunni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Körfuknattleiksdeild ÍA hefur gert tveggja ára samning við Nebosja Knezevic sem þjálfara meistaraflokks karla og mun hann stýra liðinu í 2. deildinni á komandi tímabili. Ásamt því að þjálfa meistaraflokk karla mun Nebosja einnig sjá um yngri flokka þjálfun. Nebosja kemur til ÍA frá Skallagrími þar sem hann þjálfaði meðal annars meistaraflokk kvenna áður en liðið var lagt niður á miðju tímabili síðasta vetur. Þar á undan þjálfaði hann yngri flokka á Ísafirði í fimm ár með afar góðum árangri.\r\n\r\nÍ frétt á FB síðu Körfuknattleiksfélags ÍA segir að stjórn deildarinnar beri miklar væntingar til samstarfsins við Nebosja og að reynsla hans og metnaður muni skila liðum ÍA aftur í fremstu röð á næstu árum.",
  "innerBlocks": []
}
ÍA gerir samning við nýjan þjálfara í körfunni - Skessuhorn