
Á pallinum framan við gömlu kaupfélagshúsin í Englendingavík. F.v. Marie-Gabrielle Ineichen-Fleisch, Dominique Hasler, Jurin Laksanawisit, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, Janicke Andreassen og Henri Getaz. Ljósm. efta.
Sumarfundur EFTA ríkjanna var haldinn í Borgarnesi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Í gær fór fram sumarfundur EFTA. Var fundurinn að þessu sinni haldinn í Borgarnesi, en dagskrá hans var bæði í húsnæði Menntaskóla Borgarfjarðar og í Englendingavík. „Áskoranir sem alþjóðaviðskiptakerfið stendur frammi fyrir vegna afleiðinga heimsfaraldursins og innrásar Rússlands í Úkraínu og yfirstandandi fríverslunarviðræður EFTA-ríkjanna voru til umfjöllunar á ráðherrafundi EFTA. Þá var fríverslunarviðræðum við Taíland og Kósovó ýtt úr vör,“ segir í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu. Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir utanríkisráðherra stýrði fundinum sem markar lok eins árs formennsku Íslands í EFTA samstarfinu.\r\n\r\nAuk Þórdísar Kolbrúnar sátu fundinn; Dominique Hasler, utanríkisráðherra Liechtenstein, Janicke Andreassen, aðstoðar viðskipta- og iðnaðarráðherra Noregs, og Marie-Gabrielle Ineichen-Fleisch, ráðuneytisstjóri í efnahagsmálaráðuneyti Sviss.\r\n\r\nRáðherrarnir fordæmdu innrás Rússlands í Úkraínu og lýstu yfir áhyggjum af áhrifum hennar á fæðuöryggi í heiminum. Komu þeir sér saman um að leita leiða til að styðja Úkraínu, meðal annars með þátttöku í refsiaðgerðum gegn Rússlandi. Utanríkisráðherra gerði grein fyrir ákvörðun ríkisstjórnarinnar við að fella niður tolla á vörum frá Úkraínu í eitt ár en Alþingi samþykkti frumvarp þess efnis í síðustu viku.\r\n\r\n„Það var afar ánægjulegt og mikilvægt að ná að hitta fulltrúa hinna EFTA-ríkjanna,“ segir Þórdís Kolbrún. „Á tímum sívaxandi alþjóðlegrar óvissu, og vegna innrásar Rússlands í Úkraínu, er mikilvægt að standa vörð um EFTA samstarfið og skuldbindingar okkar til að vinna saman að friði og opnum utanríkisviðskiptum.“\r\n\r\nStaða yfirstandandi fríverslunarviðræðna EFTA voru einnig til umræðu á fundinum en með gildistöku fríverslunarsamnings við Indónesíu á síðasta ári nær fríverslunarnet EFTA nú til fjörutíu ríkja eða ríkjasvæða. Jákvæð skref voru tekin í átt að frekari útvíkkun netsins þegar nýjum fríverslunarviðræðum við Taíland og við Kósovó var ýtt úr vör að viðstöddum viðskiptaráðherra Kósovó, Rozeta Hajdari og viðskiptaráðherra og varaforsætisráðherra Taílands, Jurin Laksanawisit. Bæði ríkin eru mikilvægir samstarfsaðilar EFTA-ríkjanna en viðskipti við Kósovó hafa aukist verulega á síðustu tuttugu árum og viðskipti við Taíland hafa á þessum tíma þrefaldast.\r\n\r\nÍ tengslum við ráðherrafundinn áttu ráðherrarnir fund með þingmannanefnd og ráðgjafanefnd EFTA þar sem staða fríverslunarviðræðna og þróun EES-samningsins voru rædd. Um er að ræða mikilvægan og gagnlegan vettvang til skoðanaskipta og á milli ráðgjafanefndanna og ráðherranna en samstarf EFTA-ríkjanna við nefndirnar hefur verið að styrkjast á síðustu árum.",
"innerBlocks": []
}