{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Seðlabankinn tilkynnti í dag um enn eina hækkun stýrivaxta. Vextir verða nú hækkaðir um eitt prósentustig sem jafngildir 26,67% hækkun. Verða meginvextir stofnunarinnar nú, vextir á sjö daga bundnum innlánum, 4,75%. Í yfirlýsingu peningastefnunefndar stofnunarinnar segir að samkvæmt bráðabirgðatölum þjóðhagsreikninga hafi verið nokkru meiri hagvöxtur á fyrsta fjórðungi ársins en gert var ráð fyrir í maíspá hennar. „Vísbendingar eru jafnframt um að þróttur innlendra umsvifa verði áfram kröftugur og hlutfall fyrirtækja sem segjast skorta starfsfólk hefur ekki mælst hærra frá árinu 2007. Á móti vegur að væntingar bæði heimila og fyrirtækja um efnahagsframvinduna hafa heldur dalað og töluverð óvissa er um alþjóðlegar efnahagshorfur.“\r\n\r\nVerðbólga jókst í maí og mældist þá 7,6%. Enn vegur hækkun húsnæðisverðs og annarra innlendra kostnaðarliða þungt auk þess sem alþjóðlegt olíu- og hrávöruverð hefur hækkað mikið. Verðhækkanir eru á breiðum grunni og undirliggjandi verðbólga hefur aukist. Þá hafa verðbólguvæntingar hækkað á flesta mælikvarða og eru yfir verðbólgumarkmiði stofnunarinnar. „Peningastefnunefnd telur líklegt að herða þurfi taumhald peningastefnunnar enn frekar til að tryggja að verðbólga hjaðni í markmið innan ásættanlegs tíma. Peningastefnan mun á næstunni ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga. Ákvarðanir í atvinnulífi, á vinnumarkaði og í ríkisfjármálum munu skipta miklu um hversu hátt vextir þurfa að fara,“ segir í yfirlýsingu Seðlabankans.",
"innerBlocks": []
}
Stýrivextir hækkaðir um heilt prósentustig - Skessuhorn