Sigurbjörn Hallsson staðarstjóri Bestlu á Akranesi. Ljósm. vaks.

Vel gengur með fjölbýlishúsin við Þjóðbraut

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Byggingarfélagið Bestla er um þessar mundir með tvö fjölbýlishús í byggingu við Þjóðbraut 3 og Þjóðbraut 5 á Akranesi. Sigurbjörn Hallsson, eða Silli eins og hann er kallaður, er staðarstjóri Bestlu á Akranesi en hann hóf störf þar í október síðastliðnum. Blaðamaður Skessuhorns heimsótti Silla í lok síðustu viku á vinnustaðinn til að forvitnast um framkvæmdirnar. Hann segir að ekki sé langt í að fyrirtækið ljúki við fjölbýlishúsið við Þjóðbraut 3, uppsteypan sé búin og búið að setja innréttingar á fyrstu tvær hæðirnar og verið að vinna í þeirri þriðju. „Í vikunni verða síðustu gólfin flotuð á fimmtu hæðinni í stigaganginum og lyftan sett í. Það er búið að mála allt nema lokaumferðina á allar íbúðirnar í blokkinni þannig að við erum á síðustu metrunum að ná að ljúka við fyrstu þrjár hæðirnar. Svo er verið að klára garðinn og frágang úti í kringum Þjóðbraut 3 og í ágúst aðskiljum við svæðin tvö.“\r\n\r\n<em>Sjá nánar viðtal við Sigurbjörn í Skessuhorni sem var að koma út.</em>",
  "innerBlocks": []
}