
Hér standa þau við nýja kistuvagninn. F.v. Elvar Ólason og Þórhildur Þorsteinsdóttir fulltrúar Hvammssóknar, Þorvaldur Jónsson sóknarnefndarformaður og sr. Hildur Björk Hörpudóttir.
Hvammssókn færði Reykholtskirkju kistuvagn að gjöf
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Að morgni þjóðhátíðardagsins var stutt athöfn í Reykholtskirkju. Þá færðu fulltrúar Hvammssóknar í Norðurárdal Reykholtskirkju að gjöf nýjan kistuvagn. Um er að ræða vagn sem hægt er að draga sundur, og leggja saman, og er ætlaður til flutnings á líkkistum og á honum standa kisturnar við útfarir. Vagninn er á hjólum og klæddur smekklegu efni. Vagn sem þessi hefur ekki áður verið til í Reykholti en mun nú nýtast vel.\r\n\r\nÞað voru hjónin Elvar Ólason og Þórhildur Þorsteinsdóttir á Brekku sem afhentu gjöfina fyrir hönd Hvammssóknar. Þórhildur sagði við þetta tilefni að hún sem starfsmaður við útfararþjónustu hafi skynjað þörfina. Hvammssókn hafi verið aflögufær og viljað leggja sitt til Reykholtskirkju, þaðan sem vaxandi fjöldi útfara í héraði fer nú fram. Við gjöfinni tóku þau Þorvaldur Jónsson sóknarnefndarformaður og séra Hildur Björk Hörpudóttir sóknarprestur. Þorvaldur þakkaði af heilum hug þennan rausnarskap nágrannanna. Við messu skömmu síðar sagði sr. Hildur Björk frá gjöfinni og að gripur þessi yrði notaður við jarðarfarir eftirleiðis og muni auðvelda fólki að kveðja sína nánustu: „Það eru svona gjafir sem einstakt samfélag gefur, samfélag eins og Hvammssókn sem skynjar þörfina og bregst við henni af kærleika. En það er fátt jafn sterkt í íslensku samfélagi og þörfin til að kveðja fallega. Við viljum koma saman, sjá og hitta hvert annað, hlusta og skynja einlægnina í sorginni og við viljum deila máltíð og faðma og hugga. Þannig er íslensk jarðarför og þannig er íslenskt samfélag. Oftar eru stólpar þess minnst sýnilegir,“ sagði séra Hildur Björk.",
"innerBlocks": []
}