{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "<div class=\"single-news__big-image\">\r\n\r\nAlþingi samþykkti 15. júní síðastliðinn <a href=\"https://www.althingi.is/lagas/nuna/1997129.html\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">frumvarp sem breytir lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða</a>. Breytingin felur í sér lögfestingu þriggja atriða úr stuðningsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar við lífskjarasamninga frá árinu 2019. Ber þar fyrst að nefna að lágmarksiðgjald í lífeyrissjóð hækkar úr 12% í 15,5%. Í öðru lagi hækkar lágmarkstryggingavernd úr 1,4% á ári að meðaltali í 1,8% á ári að meðaltali, eða úr 56% í 72% yfir 40 ára inngreiðslutíma. Í þriðja lagi er lífeyrissjóðum heimilt að bjóða upp á tilgreinda séreign, séreignarsparnað sem er hluti af lágmarkstryggingavernd, og getur numið allt að 3,5% iðgjaldshluta. Með tilgreindri séreign eykst fjölbreytni lífeyrissparnaðar og möguleikar sjóðfélaga á að ávaxta lífeyri sinn með sem hentugustum hætti.\r\n\r\n</div>\r\n<section class=\"single-news__content\">Með samþykkt frumvarpsins var lögum um stuðning til kaupa á fyrstu íbúð breytt þannig að nýta má tilgreinda séreign til kaupa á fyrstu fasteign að uppfylltum ákveðnum skilyrðum auk þess sem sjóðfélagar sem ekki hafa verið eig¬endur að íbúðar¬hús¬næði í fimm ár geta talist fyrstu kaupendur og nýtt heimildir laganna.\r\n\r\nLoks felur samþykkt frumvarpsins í sér jöfnun á rétti fólks til greiðslna frá almannatryggingum þar sem breyting er gerð á þeim greiðslum frá lífeyrissjóðum sem koma til skerðingar greiðslum frá almannatryggingum.\r\n\r\n</section>",
"innerBlocks": []
}