
Glímt við lax í Viðbjóði í Grímsá. Ljósm. gb
Flottur smálax í Viðbjóði
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Laxveiðin fer ágætlega af stað víða og töluvert af laxi er að ganga í árnar. Hítará var með sex laxa opnun. Fyrsta hollið í Langá veiddi tvo laxa og eitthvað er komið af laxi í Haffjarðará. Það veiddust 18 laxar í opnun Grímsár í Borgarfirði, tveggja ára lax og eins árs lax í bland. „Þetta byrjar bara vel hjá okkur,“ sagði Jón Þór Júlíusson er við spurðum um Grímsá og bætti við: „Það er hellirigning hérna núna í holli númer tvö, en þar voru að byrja veiðar.\r\n\r\nSvo erum við að fara að opna Laxá í Dölum 24. júní og það hafa sést laxar í ánni, en hún hefur ekki mikið verið skoðuð. Við höfum verið í miklum framkvæmdum við að laga veiðihúsið við Laxá í Dölum áður en veiðitíminn byrjar,“ sagði Jón Þór.\r\n\r\n<img class=\"alignnone size-medium wp-image-54378\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Flottur-smalax-i-Vidbjodi_2-600x400.jpg\" alt=\"\" />",
"innerBlocks": []
}