Fréttir

true

Opin hús hjá RARIK í tilefni af 75 ára afmæli

Miðvikudaginn 15. júní næstkomandi verða opin hús á völdum starfsstöðvum RARIK víðs vegar um landið í tilefni af 75 ára afmæli fyrirtækisins. Starfsmenn RARIK munu taka á móti gestum og kynna aðstöðu og starfsemi fyrirtækisins á hverjum stað. Boðið verður upp á kaffi, afmælistertu og aðrar veitingar auk þess sem afmælisfáni RARIK verður dreginn að…Lesa meira

true

Fer úr sjómennsku í húsgagnasmíði

Hilmar Björnsson var nýkominn frá borði í byrjun maímánaðar þegar blaðamaður Skessuhorns hitti á hann við Ólafsvíkurhöfn til að spjalla um sjómennskuna. „Vertíðin hefur verið góð. Það var reyndar hrikalegt veður í janúar og febrúar. Við náðum til dæmis ekki nema 18 róðrum í febrúar, allt hitt voru bræludagar,“ segir Hilmar um vertíðina en hann…Lesa meira

true

Skeljahátíð í Hólminum um helgina

Skeljahátíð fer fram í Stykkishólmi um næstu helgi, dagana 11. og 12. júní. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin. Í tilkynningu segir að á hátíðinni leiki matarkistan Breiðafjörður lykilhlutverk og vel sé við hæfi að halda slíka hátíð um sjómannadagshelgina, en sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um land allt sunnudaginn 12. júní. Dagskrá…Lesa meira

true

Komin aftur á heimaslóðir og hefur umsjón með framhaldsnámi

Gunnhildur Guðbrandsdóttir hefur byrjað störf sem deildarfulltrúi á kennslusviði við LbhÍ á Hvanneyri. Hún er uppalin á Staðarhrauni á Mýrum og er landfræðingur og þróunarfræðingur að mennt. Gunnhildur er 44 ára gift og þriggja barna móðir og er að flytja til baka í Borgarnes eftir um það bil 13 ár í Svíþjóð og þar áður…Lesa meira

true

Fengu að sprauta og sulla á slökkvistöðinni

Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar tók í dag á móti öllum útskriftarárgöngum úr leikskólum á starfssvæðinu, Akranesi og Hvalfjarðarsveit, á slökkvistöðinni að Kalmannsvöllum 2 á Akranesi. Um var að ræða leikskólana Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel á Akranesi og Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Tilefnið var lok á verkefninu „Aðstoðarmaður slökkviliðsins“ sem börnin hafa verið að vinna að…Lesa meira

true

Bandarískt frumkvöðlafyrirtæki hefur starfsemi á Akranesi

Bandaríska loftslagsfyrirtækið Running Tide undirritaði í dag samning við Breið – þróunarfélag og Brim hf. á Akranesi um leigu húsnæðis undir aðstöðu fyrir rannsóknir og framleiðslu á þörungum til kolefnisbindingar í hafi. Undirritunin er fyrsta skrefið í uppbyggingu á starfsemi fyrirtækisins á Akranesi, sem einnig horfir til þess að vera með starfsemi á Grundartanga. Starfsemi…Lesa meira

true

Ingibjörg sæmd stórkrossi í Noregi

Á upplýsingasíðu sendiráðs Íslands í Noregi kemur fram að Ingibjörg Davíðsdóttir sendiherra hafi í dag verið sæmd stórkrossi hinnar konunglegu norsku þjónustuorðu. Hana fær Ingibjörg fyrir embættisstörf í þágu samskipta Íslands og Noregs. Orðuna afhenti Tore Hattrem ráðuneytisstjóri norska utanríkisráðuneytisins. Ingibjörg sem er frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð hefur verið sendiherra í Noregi frá árinu 2019…Lesa meira

true

Skógræktin verður kærð fyrir umhverfisspjöll

Um síðustu helgi voru stöðvaðar framkvæmdir við vegagerð ofarlega í hlíðum Dragafjalls í sunnanverðum Skorradal. Þar hyggst Skógræktin planta í norðurhlíð fjallsins í landi Stóru-Drageyrar. Til að auðvelda aðgengi með skógarplöntur á svæðið ákvað Skógræktin að fá verktaka til að ryðja vegslóða þvert á mosavaxna hlíðina ofanverða. Mætt var með stóra jarðýtu sem ruddi vegslóðann.…Lesa meira

true

Nýir kaupmenn taka við versluninni í Reykholti sem heitir nú Skjálfti

Í gær urðu eigendaskipti að versluninni Hönnubúð, sem Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir á Grímsstöðum, hefur rekið í Reykholti frá 2010. Nú hefur parið Hrafnhildur Einarsdóttir og Szymon Nabakowski í Sólbyrgi keypt verslunarhúsið og lager og opnuðu verslunina í morgun klukkan 10. Hrafnhildur segir í samtali við Skessuhorn að þau kaupi ekki vörumerkið Hönnubúð og hefji nú…Lesa meira

true

Skallagrímur með fjórða sigurinn í röð

Kría og Skallagrímur áttust við í A riðli í 4. deild karla í knattspyrnu í gærkvöldi og fór leikurinn fram á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi. Sergio Fuentes Jorda kom Skallagrími yfir í leiknum eftir hálftíma leik en Birkir Rafnsson jafnaði leikinn fyrir heimamenn eftir tíu mínútna leik í síðari hálfleik. Elís Dofri Gylfason kom gestunum aftur…Lesa meira