Formlega eigendaskipti urðu að versluninni í gær. F.v. Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir, sem nú lætur af kaupmennsku, Hrafnhildur Einarsdóttir og Szymon Nabakowski í Skjálfta. Ljósm. mm.

Nýir kaupmenn taka við versluninni í Reykholti sem heitir nú Skjálfti

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í gær urðu eigendaskipti að versluninni Hönnubúð, sem Jóhanna Sjöfn Guðmundsdóttir á Grímsstöðum, hefur rekið í Reykholti frá 2010. Nú hefur parið Hrafnhildur Einarsdóttir og Szymon Nabakowski í Sólbyrgi keypt verslunarhúsið og lager og opnuðu verslunina í morgun klukkan 10. Hrafnhildur segir í samtali við Skessuhorn að þau kaupi ekki vörumerkið Hönnubúð og hefji nú rekstur í nýrri kennitölu og heitir verslunin hér eftir Skjálfti. Til gamans má geta þess að verslun í þessu húsi á sér um hálfrar aldar sögu, en Gunnar Jónsson bóndi á Breiðabólsstað hóf upphaflega kaupmennsku í húsinu undir heitinu Breiðvangur, í hálfkæringi sveitunga kölluð KGB, sem átti að standa fyrir Kaupfélag Gunnars á Breiða. Síðar hét verslunin ýmsum nöfnum eftir því hverjir ráku hana. Lengst hét hún Bitinn og síðar Vegbitinn, en nú síðustu tólf árin Hönnubúð eins og fyrr segir.\r\n\r\n„Við ætlum nú til að byrja með að verða með opið frá klukkan 10 til 18 alla daga en munum fljótlega auka opnunartímann um helgar,“ segir Hrafnhildur. „Hér verður hægt að kaupa allt það helsta í mat og drykk, ferðavörur og fleira, auk þess að hér eru opnar eldsneytisdælur frá N1. Þá munum við leggja áherslu á mat úr héraði, svo sem frá Háafelli, Erpsstöðum, Sólbyrgi og víðar,“ segir Hrafnhildur. Hún bætir því við að vöruframboð og úrval muni taka breytingum, en verði með svipuðum hætti nú til að byrja með meðan þau eru að læra inn á reksturinn. Szymon bætir því við að nú fljótlega hefji þau sölu á sumarblómum sem hann hefur ræktað í Sólbyrgi, auk jarðarberjanna og ýmsu fleira.",
  "innerBlocks": []
}