
Gunnhildur Guðbrandsdóttir. Ljósm. LbhÍ.
Komin aftur á heimaslóðir og hefur umsjón með framhaldsnámi
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Gunnhildur Guðbrandsdóttir hefur byrjað störf sem deildarfulltrúi á kennslusviði við LbhÍ á Hvanneyri. Hún er uppalin á Staðarhrauni á Mýrum og er landfræðingur og þróunarfræðingur að mennt. Gunnhildur er 44 ára gift og þriggja barna móðir og er að flytja til baka í Borgarnes eftir um það bil 13 ár í Svíþjóð og þar áður tíu ár í Reykjavík.\r\n\r\n„Í Svíþjóð vann ég sem verkefnastjóri móðurmálsstofunnar í sveitarfélaginu Täby í Stokkhólmi ásamt því sem ég tók að mér að kenna íslensku sem móðurmál fyrir grunnskólabörn í nokkur ár,“ segir hún. Gunnhildur hefur mikinn áhuga á jafnréttismálum, náttúrunni og samveru með fjölskyldu og vinum.\r\n\r\nStarf hennar við LbhÍ felur í sér umsjón með framhaldsnáminu við skólann. Hún verður tengiliður milli nemenda annars vegar og kennara og skólans hins vegar ásamt umsjón með skipulagi og utanumhaldi námsins. Nemendum í framhaldsnámi hefur fjölgað mikið undanfarin ár og því mikilvægt að bæta við starfskrafti í teymi kennsluskrifstofu til að halda áfram að veita öllum góða og skjóta þjónustu. „Ég er bara rosa ánægð með að vera komin aftur á æskuslóðir og að veita börnunum mínum tækifæri á að alast upp við sama frelsi og ég gerði og í þessari náttúrufegurð sem hér er,“ segir Gunnhildur.",
"innerBlocks": []
}