Blaðamaður Skessuhorns kíkti í morgun þegar leikskólinn Skýjaborg var í heimsókn og smellti af meðfylgjandi mynd. Ljósm. vaks.

Fengu að sprauta og sulla á slökkvistöðinni

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Slökkvilið Akraness og Hvalfjarðarsveitar tók í dag á móti öllum útskriftarárgöngum úr leikskólum á starfssvæðinu, Akranesi og Hvalfjarðarsveit, á slökkvistöðinni að Kalmannsvöllum 2 á Akranesi. Um var að ræða leikskólana Akrasel, Garðasel, Teigasel og Vallarsel á Akranesi og Skýjaborg í Hvalfjarðarsveit. Tilefnið var lok á verkefninu „Aðstoðarmaður slökkviliðsins“ sem börnin hafa verið að vinna að í leikskólanum í vetur. Þar hafa krakkarnir verið að kanna með eldvarnir á sínu heimili og einnig á leikskólanum. Logi og Glóð eru slökkviálfar og eru krökkunum til aðstoðar í þessu verkefni. Einnig hafa þau fengið leiðsögn frá leikskólakennurum og forvarnasviði Slökkviliðs Akraness og Hvalfjarðarsveitar.\r\n\r\nAllir krakkar sem taka þátt í verkefninu fá viðurkenningarskjal í lok heimsóknarinnar. Verkefnið er samstarfsverkefni leikskóla, Brunabótafélags Íslands og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.\r\n\r\n ",
  "innerBlocks": []
}
Fengu að sprauta og sulla á slökkvistöðinni - Skessuhorn