{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Á upplýsingasíðu sendiráðs Íslands í Noregi kemur fram að Ingibjörg Davíðsdóttir sendiherra hafi í dag verið sæmd stórkrossi hinnar konunglegu norsku þjónustuorðu. Hana fær Ingibjörg fyrir embættisstörf í þágu samskipta Íslands og Noregs. Orðuna afhenti Tore Hattrem ráðuneytisstjóri norska utanríkisráðuneytisins. Ingibjörg sem er frá Arnbjargarlæk í Þverárhlíð hefur verið sendiherra í Noregi frá árinu 2019 en hefur starfað í utanríkisþjónustu Íslands frá 1999.",
"innerBlocks": []
}