Hér má sjá hvernig nýr vegur ofarlega í hlíðinni hefur verið ruddur. Ljósm. aðsend.

Skógræktin verður kærð fyrir umhverfisspjöll

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Um síðustu helgi voru stöðvaðar framkvæmdir við vegagerð ofarlega í hlíðum Dragafjalls í sunnanverðum Skorradal. Þar hyggst Skógræktin planta í norðurhlíð fjallsins í landi Stóru-Drageyrar. Til að auðvelda aðgengi með skógarplöntur á svæðið ákvað Skógræktin að fá verktaka til að ryðja vegslóða þvert á mosavaxna hlíðina ofanverða. Mætt var með stóra jarðýtu sem ruddi vegslóðann. Ekkert leyfi er fyrir þessari vegagerð og því var að beiðni skipulagsfulltrúa Skorradalshrepps lögregla fengin til að stöðva framkvæmdir síðdegis á laugardaginn.\r\n\r\nÝmsir hafa brugðist við vegna málsins og eigendur sumarhúsa í norðurhlíðum Skorradals hafa lýst sig í senn hrygga og reiða yfir framkvæmdinni sem þeir telja verulega umhverfislýti. Karólína Hulda Guðmundsdóttir á Fitjum hefur ákveðið að leggja fram kæru á Skógræktina sem ber ábyrgð á verkinu. Hefur hún jafnframt tilkynnt Þresti Eysteinssyni skógræktarstjóra að kæru sé að vænta. Í tölvupósti sem Karólína Hulda sendi Þresti, og Skessuhorn hefur undir höndum, skrifar hún: „Nú hefur ykkur orðið ærlega á í messunni - hvernig dettur ykkur í hug að framkvæma jafn alvarlegt brot og þetta? Ég hef aflað mér upplýsinga um að engin leyfi eru fyrir þessu hjá skipulagsyfirvöldum. Ég sé ekki annað í stöðunni en kæra þennan verknað,“ skrifaði Karólína Hulda í bréfi til skógræktarstjóra.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_54110\" align=\"alignnone\" width=\"600\"]<img class=\"wp-image-54110 size-medium\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2022/06/Skograektin-verdur-kaerd-fyrir-umhverfisspjoll_2-600x450.jpg\" alt=\"\" width=\"600\" height=\"450\" /> Þessar skógarplöntur bíða í vegkantinum á Draghálsi eftir að verða fluttar í hlíðina í landi Stóru-Drageyrar. Einu tiltæku rökin fyrir vegagerðinni virðast vera þau að spara einhverjum sporin við að flytja plönturnar. Ljósm. mm.[/caption]",
  "innerBlocks": []
}