Fréttir

true

Vinnuskólinn á Akranesi er byrjaður

Í gær var Vinnuskólinn á Akranesi settur og starfsemin kynnt fyrir verðandi starfsfólki. Um 260 umsóknir hafa verið afgreiddar um sumarstörf. Jón Arnar Sverrisson garðyrkjustjóri Akraneskaupstaðar segir að efnilegur hópur flokksstjóra sé nú tilbúinn til að takast á við þau fjölmörgu verkefni sem bíða starfsemi Vinnuskólans. „Næstu daga og vikur verður líf og fjör í…Lesa meira

true

Gróðursett í minningu Berglindar Rósu

Þriðjudaginn 31. maí var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þó svo að formlegu skólahaldi væri lokið. Ástæða þess var sú að fjölskylda Berglindar Rósu Jósepsdóttur gaf skólanum 147 tré til gróðursetningar. Berglind Rósa var starfsmaður við mötuneyti skólans í nokkur ár en hún lést eftir skammvinn veikindi 30. desember 2019, aðeins 33 ára…Lesa meira

true

Stefán Broddi Guðjónsson ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar

Meirihluti sveitarstjórnar í Borgarbyggð hefur ákveðið að ráða Stefán Brodda Guðjónsson í starf sveitarstjóra í Borgarbyggð og er áætlað að hann taki til starfa 1. júlí næstkomandi. Ráðningarsamningur tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur á fundi sveitarstjórnar. Stefán Broddi, sem er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, hefur síðastliðin tíu ár…Lesa meira

true

Aktu varlega – mamma og pabbi vinna hér!

Vegagerðin, í samstarfi við Samgöngustofu, Ríkislögreglustjóra og verktakafyrirtækin Ístak, Colas Ísland hf. og Borgarverk efna til vitundarátaksins: Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, sem felst í að beita sér fyrir aukinni vitund vegfarenda um öryggi starfsfólks við vegavinnu.  Hönnuð hafa verið áberandi og öðruvísi skilti sem afhjúpuð voru í morgun. Skiltin verða notuð…Lesa meira

true

Fyrsta skemmtiferðaskip sumarsins til Grundarfjarðar

Skemmtiferðaskipið Le Bellot lagðist að bryggju við Norðurgarð í Grundarfirði rétt fyrir hádegi í dag. Þetta markar upphafið að komu skemmtiferðaskipa til Grundarfjarðar þetta sumarið en alls eru skráðar 43 komur þetta sumarið. Le Bellot mun koma reglulega við í sumar í hringferð sinni um landið. Skipið var smíðað 2020 og siglir undir frönskum fána.…Lesa meira

true

Fór holu í höggi á Garðavelli

Kylfingurinn Lárus Hjaltested sló draumahöggið í síðustu viku á Garðavelli á Akranesi. Lárus fór holu í höggi á áttundu braut vallarins og komst þar með í einn eftirsóttasta klúbb landsins, Einherjaklúbbinn. Til að gerast meðlimur í Einherjaklúbbnum þurfa kylfingar að ná því að fara holu í höggi eða ná hinu svokallaða draumahöggi. Reglurnar um hvað…Lesa meira

true

Heimamaður sigraði í Jökulmílunni

Þriðja bikarmót Breiðabliks í götuhjólreiðum var haldið á Snæfellsnesi á laugardaginn. Þá var keppt í Jökulmílunni, en það voru Hjólamenn sem byrjuðu með þessa keppni fyrir nokkrum árum og er þetta bikarmót byggt á þeirri keppni. Keppt var í A, B og C flokkum karla og kvenna ásamt U15 og U17 flokkum ungmenna. Það var…Lesa meira

true

Kári lá fyrir Elliða

Elliði og Kári áttust við í 3. deild karla í knattspyrnu síðasta föstudag og var leikurinn á Fylkisvelli í Árbæ. Lítið markvert gerðist í fyrri hálfleik fyrr en á 39. mínútu þegar Markús Máni Jónsson kom heimamönnum yfir og staðan 1-0 í hálfleik. Nikulás Ingi Björnsson kom Elliða í tveggja marka forystu á 73. mínútu…Lesa meira

true

Víkingur Ólafsvík tapaði fyrir ÍR

Síðasta föstudag mættust Víkingur Ólafsvík og ÍR í fimmtu umferð 2. deildar karla í knattspyrnu og fór viðureignin fram í Ólafsvík. Gestirnir úr Breiðholtinu komust yfir strax á 2. mínútu með marki Bergvins Fannars Helgasonar og 20 mínútum síðar kom Jón Gísli Ström gestunum í tveggja marka forystu. Þannig var staðan í hálfleik og útlitið…Lesa meira

true

Hvað á að gera ef villtur fugl finnst dauður?

Þegar villtur fugl finnst dauður, skal hafa samband við Matvælastofnun, nema ef augljóst er að fuglinn hafi drepist af slysförum.  “Best er að tilkynna um dauðan fugl með því að skrá ábendingu á heimasíðu stofnunarinnar, en líka er hægt að hringja í síma 530-4800 á opnunartíma eða senda tölvupóst á netfangið mast@mast.is. MAST metur hvort…Lesa meira