
Stefán Broddi Guðjónsson tekur senn við starfi sveitarstjóra í Borgarbyggð.
Stefán Broddi Guðjónsson ráðinn sveitarstjóri Borgarbyggðar
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Meirihluti sveitarstjórnar í Borgarbyggð hefur ákveðið að ráða Stefán Brodda Guðjónsson í starf sveitarstjóra í Borgarbyggð og er áætlað að hann taki til starfa 1. júlí næstkomandi. Ráðningarsamningur tekur formlega gildi þegar hann hefur verið staðfestur á fundi sveitarstjórnar. Stefán Broddi, sem er með BA gráðu í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands, hefur síðastliðin tíu ár starfað hjá Arion banka, lengstum við greiningu á efnahagslífi, fjármálamörkuðum, fyrirtækjum og sveitarfélögum. Frá 2015 hefur hann stýrt greiningardeild bankans. Stefán Broddi er uppalinn í Borgarnesi, sonur Guðjóns Ingva Stefánssonar og Guðrúnar Broddadóttur. Þar bjó hann fram á þrítugsaldurinn. „Það reyndist mér afar gott veganesti út í lífið að alast upp í Borgarnesi. Ég er sveitarstjórn og íbúum afar þakklátur fyrir tækifærið og mun leggja mig allan fram um að standa mig. Tækifærin í Borgarbyggð eru óþrjótandi,“ segir hann.\r\n\r\nStefán Broddi hefur í rúma tvo áratugi starfað sem sérfræðingur og stjórnandi á íslenskum fjármálamarkaði en starfaði þar á undan m.a. við blaðamennsku og útvarp, ásamt því að hafa starfað á vettvangi Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Eiginkona hans er Þuríður Anna Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur og deildarstjóri á Landspítalanum, og eiga þau þrjá syni.",
"innerBlocks": []
}