
Hópurinn sem mætti og gróðursetti samanstendur af fjölskyldu Berglindar og starfsmönnum FSN. Ljósmyndir: TFK.
Gróðursett í minningu Berglindar Rósu
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Þriðjudaginn 31. maí var mikið um að vera í Fjölbrautaskóla Snæfellinga þó svo að formlegu skólahaldi væri lokið. Ástæða þess var sú að fjölskylda Berglindar Rósu Jósepsdóttur gaf skólanum 147 tré til gróðursetningar. Berglind Rósa var starfsmaður við mötuneyti skólans í nokkur ár en hún lést eftir skammvinn veikindi 30. desember 2019, aðeins 33 ára gömul. Starfsmenn FSN og fjölskylda Berglindar komu því saman þennan dag og gróðursettu alls 15 reynitré, 30 birkitré, 67 stafafurur og 35 aspir. Vonir standa til að þarna muni vaxa myndarlegur lundur í framtíðinni til minningar um Beggu. Stefnt er að því að setja einnig upp rólubekk þar sem hægt verður að setjast niður og hvíla lúin bein. Fjölskylda Beggu vill koma á framfæri þökkum til starfsmanna Fjölbrautaskóla Snæfellinga og þá sérstaklega Árna Ásgeirssonar raungreinakennara, Ólafs Tryggvasonar umsjónarmanns fasteigna skólans og Björns Ásgeirs Sumarliðasonar formanns Skógræktarfélags Stykkishólms, en hann var einnig fyrsti forseti nemendafélags Fjölbrautaskóla Snæfellinga fyrir nokkrum árum.\r\n\r\n[gallery columns=\"2\" size=\"large\" ids=\"54039,54040,54041,54042,54043,54044,54045\"]",
"innerBlocks": []
}