
Á meðfylgjandi mynd af hópnum eru: Óskar Sigvaldason framkvæmdastjóri Borgarverks, Hjálmur Þorsteinn Sigurðsson deildarstjóri mannvirkja hjá Ístaki, Sigþór Sigurðsson framkvæmdastjóri Colas Íslandi, Bergþóra Þorkelsdóttir forstjóri Vegagerðarinnar, Kristín Helga Markúsdóttir framkvæmdastjóri stjórnsýslu- og þróunarsviðs Samgöngustofu og Ólafur Örn Bragason forstöðumaður mennta- og starfsþróunarsetur lögreglu.
Aktu varlega – mamma og pabbi vinna hér!
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Vegagerðin, í samstarfi við Samgöngustofu, Ríkislögreglustjóra og verktakafyrirtækin Ístak, Colas Ísland hf. og Borgarverk efna til vitundarátaksins: Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, sem felst í að beita sér fyrir aukinni vitund vegfarenda um öryggi starfsfólks við vegavinnu. Hönnuð hafa verið áberandi og öðruvísi skilti sem afhjúpuð voru í morgun. Skiltin verða notuð við framkvæmdasvæði á vegum landsins í sumar meðan átakið stendur yfir.\r\n\r\nVegavinna í nálægð við þunga og hraða umferð getur verið stórhættuleg þeim sem við hana vinna. Því eru vinnusvæði ávallt vel merkt og hraði tekinn niður með umferðarskiltum. Því miður hefur það ekki alltaf borið árangur og hraði í gegnum vinnusvæði er oft mikill sem eykur mjög hættu fyrir starfsfólk.",
"innerBlocks": []
}