Fréttir

true

Þóra Björg söng Gleði og friðarjól

Tuttugasti gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það Þóra Björg Sigurðardóttir, prestur í Garða- og Saurbæjarprestakalli, sem opnaði gluggann með laginu Gleði og friðarjól en hún valdi það lag því hún vildi vera einlæg og minna á að það hafa það ekki allir frábært um jólin. Þóra Björg hefur áður…Lesa meira

true

Níu brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga

Laugardaginn 18. desember brautskráðust níu nemendur frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Af félags- og hugvísindabraut brautskráðust sjö nemendur; Björn Ástvar Sigurjónsson, Dagur Kjartansson, Kristófer Snær Ragnarsson, María Ósk Heimisdóttir, Ottó Ari Arason, Rakel Jóna Bredesen Davíðsdóttir og Örvar Sigurðsson. Af náttúru- og raunvísindabraut brautskráðist Ragnheiður Arnarsdóttir. Af opinni braut til stúdentsprófs brautskráðist Amelía Rún Gunnlaugsdóttir.…Lesa meira

true

ÍA tapaði gegn Álftanesi

ÍA varð að sætta sig við tap gegn Álftanesi í 1. deild karla í körfuknattleik síðastliðinn föstudag. Leikurinn fór fram á Akranesi og gestirnir náðu forskoti strax í fyrsta leikhluta og misstu aldrei dampinn. Gestirnir voru komnir í 7-0 eftir þrjár mínútur en þá komu fyrstu stig Skagamanna þegar Hendry Engelbrecht kom boltanum í gegnum…Lesa meira

true

Skallagrímsmenn urðu að sætta sig við tap

Skallagrímur mætti Haukum síðastliðinn fimmtudag á Ásvöllum í 1. deild karla í körfuknattleik. Heimamenn voru fljótir að ná yfirhöndinni í leiknum og voru komnir með 13 stiga forsko eftir fyrsta leikhluta, 33:20. Skallagrímsmenn náðu aðeins að klóra í bakkann í öðrum leikhluta og minnka muninn í sjö stig. Nær komust þeir þó ekki og heimamenn…Lesa meira

true

Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands

Laugardaginn 18 desember voru 45 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi við hátíðlega athöfn. Heimsfaraldur setti töluverðan svip á fjölbrautaskólagöngu þessa hóps en þó var að þessu sinni hægt að bjóða gestum að vera viðstadda athöfnina. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Þá ávarpaði Marinó Rafn Guðmundsson, 10…Lesa meira

true

Valgerður og Svavar Knútur sungu Dýrð í hæstum hæðum

Nítjándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það voru þau Valgerður Jónsdóttir, bæjarlistamaður Akraness, og Svavar Knútur  sem opnuðu gluggann með laginu Dýrð í hæstum hæðum. Svavar Knútur er smá Skagamaður og átti þar heima á viðkvæmum unglingsárum. Í inngangi að flutningi lagsins varð þeim tíðrætt um kraftgallann sem þeim…Lesa meira

true

Rakel söng Jól með þér

Átjándi gluggi jóladagatals Akurnesinga, Skaginn syngur inn jólin, var opnaður í morgun. Það var Rakel Pálsdóttir sem opnaði gluggann með laginu Jól með þér. Rakel hefur sungið lengi og meðal annars tekið þátt í nokkrum Eurovision undankeppnum, sóló, dúó, í kórum og í bakröddum. Hún söng lagið Jól með þér eftir Sanna Viktoria Nielsen, Joakim…Lesa meira

true

Julio Gutierrez fór ríðandi í barnaskólann

Er einn fremsti rúningsmaður Íslands Julio Cesar Gutierrez er fæddur í Uruguay en fluttist til Íslands árið 1994 og hefur því búið hér í um 25 ár. Julio er borinn og barnfæddur sveitamaður. Fjölskylda hans, foreldrar og fjórar systur, bjuggu skammt frá borginni Paysandú. Faðir hans lést árið 2002 og elsta og yngsta systirin eru…Lesa meira

true

„Það er ekki að furða, hann er í fötunum af líkinu“

Tilsvör Valbjargar Jónsdóttur í Borgarnesi rifjuð upp   Valbjörg Jónsdóttir fæddist að Valbjarnarvöllum í Borgarhreppi 21. maí 1895. Hún lést á sjúkrahúsinu á Akranesi 19. febrúar 1971. Þeir sem hana þekktu minnast hennar með sérstöku þakklæti. Þá var Valbjörg kunn fyrir hnyttin tilsvör og almenna orðheppni. Valbjörg var dóttir Jóns Guðmundssonar, bónda og hreppstjóra á…Lesa meira

true

Vegurinn við Hafnarfjall lokaður vegna slyss

Umferðarslys varð á þjóðveginum við Hafnarfjall í Borgarfirði um klukkan 16 í dag. Mikill viðbúnaður slökkviliðs, lögreglu og sjúkraflutningafólks er á vettvangi og þá hefur þyrla verið kölluð til. Þjóðvegurinn er því lokaður á meðan aðgerðir standa yfir á vettvangi. Vegagerðin bendir á hjáleið um Geldingadraga á meðan.Lesa meira