
Julio Cesar Gutierrez.
Julio Gutierrez fór ríðandi í barnaskólann
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Er einn fremsti rúningsmaður Íslands\r\n\r\nJulio Cesar Gutierrez er fæddur í Uruguay en fluttist til Íslands árið 1994 og hefur því búið hér í um 25 ár. Julio er borinn og barnfæddur sveitamaður. Fjölskylda hans, foreldrar og fjórar systur, bjuggu skammt frá borginni Paysandú. Faðir hans lést árið 2002 og elsta og yngsta systirin eru einnig látnar. Móðir hans er 92ja ára og býr hjá systur Julio og manni hennar. Blaðamaður Skessuhorns settist niður með Julio til þess að forvitnast um hagi hans og hvað á daga hans hefur drifið.\r\n\r\nUruguay er um margt frábrugðið Íslandi. Það á landamæri að Argentínu í vestri og suðvestri og Brasilíu í norðri og norðaustri. Veðurfar er mun hlýrra en að sögn Julio er nær aldrei frost að degi til í landinu. Á veturna frýs stundum um nætur og gras hélar. Þá er minna um fjöll í landinu en fáir staðir ná hærra en 200 metra yfir sjávarmál. Hæsti punktur landsins er fjallið Cerro Catedral (Dómkirkjuhæð) sem nær 513 metrum. Í Uruguay búa um þrjár og hálf milljón. Landið er um 176 þúsund ferkílómetrar og búa um tvær milljónir í eða nærri höfuðborginni Montevideo. Landið er það næst minnsta í álfunni á eftir Súrinam. Talið er að fyrstu mennirnir hafi komið til Uruguay fyrir um 13 þúsund árum. Ættbálkur Charrúa var stærstur en um níu þúsund manns tilheyrðu honum og sex þúsund ættbálknum Chaná þegar Spánverjar hófu innreið sína í heimsálfuna. Frumbyggjum hafði verið að mestu eytt um 1830 og sorglega lítið er vitað um þetta fólk. Síðustu Charrúarnir voru fluttir til Frakklands og hafðir þar til sýnis en auk þess hafði Charrúa börnum verið komið fyrir víða til þess að þræla á ökrum nýlenduherranna. Heimildirnar um Charrúana eru fátæklegar og tungumál þeirra að mestu glatað. Afkomendur þeirra hafa þó í seinni tíð verið að sameinast um að finna rætur sínar og það sem þó finnst enn um menningu þeirra. Uruguay öðlaðist sjálfstæði á árunum á milli 1811 og 1828 eftir stríðsátök á milli Portúgals og Spánar og seinna Argentínu og Brasilíu. Í dag er Uruguay „þróað“ land. Tekjur fólks eru nokkuð háar og landið er talið með þeim friðsömustu í Suður-Ameríku og spilling með minnsta móti. „Landið er það dýrasta í álfunni enda oft kallað Sviss Suður-Ameríku,“ segir Julio.\r\n\r\nRætt er við Julio Cesar Gutierrez í jólablaði Skessuhorns.",
"innerBlocks": []
}