Skallagrímsmenn urðu að sætta sig við tap

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Skallagrímur mætti Haukum síðastliðinn fimmtudag á Ásvöllum í 1. deild karla í körfuknattleik. Heimamenn voru fljótir að ná yfirhöndinni í leiknum og voru komnir með 13 stiga forsko eftir fyrsta leikhluta, 33:20. Skallagrímsmenn náðu aðeins að klóra í bakkann í öðrum leikhluta og minnka muninn í sjö stig. Nær komust þeir þó ekki og heimamenn náðu að bæta við forskotið áður en flautað var til hálfleiks, 50:36. Í síðari hálfleik var lítið að frétta hjá Skallagrímsmönnum en heimamenn héldu áfram að gefa í. Áður en lokafjórðungurinn hófst voru Haukamenn komnir 24 stigum yfir gestina, 80:56. Ekkert markvert gerðist í lokaleikhlutanum og niðurstaðan 109:71 fyrir heimamönnum.\r\n\r\nÍ liði Borgnesinga voru Bergþór Ægir Ríkharðsson og Bryan Anthony Battle með 17 stig hvor. Í liði Hauka var Jose Medina Aldana atkvæðamestur með 23 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er 27. desember þegar liðið fær Hött í heimsókn.",
  "innerBlocks": []
}
Skallagrímsmenn urðu að sætta sig við tap - Skessuhorn