
Brautskráð var frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi á laugardaginn. Ljósm. í eigu FVA
Brautskráð frá Fjölbrautaskóla Vesturlands
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Laugardaginn 18 desember voru 45 nemendur brautskráðir frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi við hátíðlega athöfn. Heimsfaraldur setti töluverðan svip á fjölbrautaskólagöngu þessa hóps en þó var að þessu sinni hægt að bjóða gestum að vera viðstadda athöfnina. Dröfn Viðarsdóttir aðstoðarskólameistari setti athöfnina og Steinunn Inga Óttarsdóttir skólameistari flutti ávarp. Þá ávarpaði Marinó Rafn Guðmundsson, 10 ára stúdent, útskriftarhópinn og hvatti þá áfram. Gylfi Karlsson flutti erindi fyrir hönd útskriftarnema. Venju samkvæmt var tónlist partur af athöfninni en Valgerður Jónsdóttir, bæjarlistamaður Akraness 2021, söng jólalög fyrir útskriftarnemendur og gesti þeirra. Dúx Fjölbrautaskóla Vesturlands er Aníta Ólafsdóttir en hún útskrifaðist með meðaleinkunnina 9,39.\r\n\r\n<em>Eftirtaldir nemendur fengu verðlaun og viðurkenningar fyrir námsárangur og störf að félags- og menningarmálum. Nöfn þeirra sem gáfu verðlaun eru innan sviga:</em>\r\n\r\nAndri Þór Einarsson fyrir góðan árangur í rafiðngreinum (VS Tölvuþjónustan) og Kötluverðlaunin fyrir bestan árangur iðnnema.\r\n\r\nAníta Ólafsdóttir fyrir góðan árangur í íslensku (Íslandsbanki), fyrir ágætan árangur í raungreinum (Terra) og fyrir frábæran árangur í stærðfræði (Elkem)\r\n\r\nAnna Magný Ellertsdóttir fyrir góðan árangur í íslensku (Penninn Eymundsson)\r\n\r\nAntonía Líf Sveinsdóttir fyrir góðan árangur í ensku (Landsbankinn) viðurkenningu fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar) auk viðurkenningar og sérstakra hvatningarverðlauna frá Zonta klúbbnum.\r\n\r\nÁrni Þórir Heiðarsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar)\r\n\r\nÁsdís Ýr Þorgrímsdóttir fyrir góðan árangur í íslensku (Rótarýklúbbur Akraness) og góðan árangur í samfélagsgreinum (VLFA)\r\n\r\nBergþór Ægir Ríkharðsson fyrir ágætan árangur í rafiðngreinum (RAFPRÓ)\r\n\r\nBjarki Rúnar Ívarsson fyrir ágætan árangur í íþróttagreinum (FVA)\r\n\r\nErlend Magnússon fyrir ágætan árangur í rafiðngreinum (Akraborg)\r\n\r\nGylfi Karlsson fyrir ágætan árangur í rafiðngreinum (Vogir og Lagnir) og fyrir framlag sitt til félagsstarfa í FVA (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar)\r\n\r\nHelgi Jón Sigurðsson fyrir ágætan árangur í rafiðngreinum (Skaginn 3X)\r\n\r\nMiriam Arna Daníelsdóttir Glad fyrir ágætan árangur í dönsku (Danska sendiráðið)\r\n\r\nPatrekur Orri Unnarsson fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar)\r\n\r\nRonja Rut Ragney Hjartardóttir fyrir framlag sitt til félagsstarfa (Minningarsjóður Karls Kristins Kristjánssonar)\r\n\r\nÞorgils Sigurþórsson fyrir ágætan árangur í rafiðngreinum (Norðurál)",
"innerBlocks": []
}