Fréttir

true

Sperrur nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar teknar að rísa

Í gær hófst vinna við reisingu á fyrstu sperrum nýrrar björgunarmiðstöðvar Brákar við Fitja í Borgarnesi. Ef veður helst skaplegt í þessari viku gæti reisingu burðarvirkis lokið fyrir eða um helgi. Nú er draumur björgunarsveitarfólks að náist að loka hluta af húsinu fyrir jól þannig að sala flugelda milli jóla og nýárs geti farið þar…Lesa meira

true

Jólablað Skessuhorns gefið út í næstu viku

Jólablað Skessuhorns kemur út í næstu viku, miðvikudaginn 15. desember. Það verður að venju stútfullt af efni. Blaðið er jafnframt síðasta blað ársins. Þeim sem vilja koma á framfæri efni eða auglýsingum til birtingar í Jólablaðinu er bent á að frestur til þess rennur út á morgun, föstudaginn 10. desember. Allar nánari upplýsingar eru gefnar…Lesa meira

true

Viljayfirlýsing um stofnun Líftæknismiðju á Breið

Í gær undirrituðu 13 fyrirtæki og stofnanir viljayfirlýsingu um stofnun Líftæknismiðju á Breið – nýsköpunarsetri á Akranesi. Þeir sem standa að stofnuninni eru í stafrófsröð: Akraborg ehf.,, Algó ehf., Breið þróunarfélag ses., Brim hf., Efnagreining ehf., Háskóli Íslands, Landbúnaðarháskóli Íslands, Lokinhamrar ehf., Norðanfiskur ehf., Norður ehf., Orkídea ses., Sedna biopack ehf. og Vignir G. Jónsson…Lesa meira

true

„Það er gott að eiga góða að“

Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd var reist af íslensku þjóðinni til minningar um séra Hallgrím Pétursson. Kirkjan er fögur og vönduð bygging og í alla staði hið prýðilegasta guðshús. Fyrir nokkru var lokið við að gera við glerið í steindum gluggum kirkjunnar, en þeir eru eftir Gerði Helgadóttur. Blaðamaður Skessuhorns ákvað að skoða málið betur…Lesa meira

true

Fjarnámskeið hjá Endurmenntun

Námskeiðsúrval Endurmenntunar er í sífelldri þróun og eitt af markmiðum stofnunarinnar undanfarin misseri hefur verið að auka úrval fjarnámskeiða til muna. Á komandi vormisseri verða á dagskrá hátt í 60 fjarnámskeið í hinum ýmsu flokkum, allt frá hagnýtum námskeiðum í starfstengdri hæfni yfir í skemmtileg og fróðleg námskeið í menningu og persónulegri hæfni. Ein nýjung…Lesa meira

true

N1 í Borgarnesi opnar Ísey skyrbar og Djúsí frá Blackbox

N1 Þjónustustöð í Borgarnesi opnaði í dag tvo nýja staði inni í versluninni, Ísey skyrbar og Djúsí. N1 bauð viðskiptavinum sínum í heimsókn í dag til að leyfa þeim að gæða sér á hinum ýmsu réttum sem þessir staðir bjóða upp á. Hjá Ísey skyrbar er hægt að fá allskonar heilsusafa og skyrrétti og Djúsí…Lesa meira

true

Snæfellskonur töpuðu á móti Hamri-Þór

Snæfell og Hamar-Þór mættust í gærkvöldi í 1. deild kvenna í körfuknattleik og fór leikurinn fram í Hveragerði. Mikið jafnræði var með liðunum í fyrsta leikhluta en Snæfell skoraði síðustu sjö stigin í honum og var með fjögurra stiga forystu, 14:18, eftir fyrsta fjórðung. Þegar tæplega fjórar mínútur voru liðnar af öðrum leikhluta var staðan…Lesa meira

true

Ísteka riftir samningum við nokkra bændur

Í myndskeiði sem dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation/ Tierschutzbund Zürich birtu í nóvember á streymisveitum sáust dæmi um ólíðandi meðferð á hryssum hjá samstarfsbændum líftæknifyrirtækisins Ísteka, sem vinnur hormón úr blóði fylfullra hryssa. Nú hefur Ísteka sent frá sér tilkynningu vegna málsins. Þar segir m.a: „Þessi meðferð á dýrunum var augljóslega brot á velferðarsamningum fyrirtækisins og…Lesa meira

true

Hátíð fer í hönd í Hólmavíkurkirkju

Einvalalið vestfirsks tónlistarfólks heldur jólatónleika Hólmavíkurkirkju föstudagskvöldið 10. desember klukkan 20. Fluttar verða margar af helstu perlum þeirrar tónlistar sem færir jólin í hjörtu landsmanna, auk þess sem gestir fá að njóta frumsaminna laga. Fram koma: Dagný Hermannsdóttir; söngur, Jón Hallfreð Engilbertsson; gítarleikur og söngur, Pétur Ernir Svavarsson; söngur og píanóleikur, Stefán Jónsson; píanóleikur og…Lesa meira

true

Opið hús eldri borgara í Miðgarði

Opið hús 60 ára og eldri verður í Miðgarði í Hvalfjarðarsveit í dag, miðvikudag, klukkan 14. Katrín Rós Sigvaldadóttir, náms- og starfsráðgjafi, kemur í heimsókn og ætlar að ræða um starfslok og hvað tekur við eftir að fólk hættir á vinnumarkaðinum. Kaffiveitingar og spjall á eftir. -fréttatilkynningLesa meira