Fjarnámskeið hjá Endurmenntun

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Námskeiðsúrval Endurmenntunar er í sífelldri þróun og eitt af markmiðum stofnunarinnar undanfarin misseri hefur verið að auka úrval fjarnámskeiða til muna. Á komandi vormisseri verða á dagskrá hátt í 60 fjarnámskeið í hinum ýmsu flokkum, allt frá hagnýtum námskeiðum í starfstengdri hæfni yfir í skemmtileg og fróðleg námskeið í menningu og persónulegri hæfni.\r\n\r\nEin nýjung í framboði Endurmenntunar verður fjarnámskeiðsval á Íslendingasagnanámskeiði vormisserisins en þau námskeið eru jafnan með vinsælustu námskeiðunum. Að þessu sinni mun Ármann Jakobsson fjalla um Flateyjarbók – Ólafs sögu Tryggvasonar og býðst þátttakendum utan höfuðborgarsvæðisins að fá sendar til sín upptökur af námskeiðinu á hverjum föstudegi frá 28. janúar. Önnur námskeið sem eru líkleg til vinsælda eru til dæmis <em>Skáldleg skrif, Árangursrík samskipti, Almenn veðurfræði og túlkun veðurspáa, Öflugt sjálfstraust</em>, <em>Kínverska í ferðaþjónustu, Gerlar og geðheilsa – hvað segja vísindin?, Verkefnastjórnun – verkefnisáætlun, Kvíði barna og unglinga – fagnámskeið, Persónuleg fjármál, Textílsaga fyrir kennara </em>og <em>Vitræn geta og endurhæfing fólks með geðraskanir. </em>Er þetta einungis lítið brot af frábæru úrvali vormisserisins og áhugasamir eru hvattir til að finna sitt fjarnámskeið á endurmenntun.is\r\n\r\n<em>-fréttatilkynning</em>",
  "innerBlocks": []
}
Fjarnámskeið hjá Endurmenntun - Skessuhorn