N1 í Borgarnesi opnar Ísey skyrbar og Djúsí frá Blackbox
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "N1 Þjónustustöð í Borgarnesi opnaði í dag tvo nýja staði inni í versluninni, Ísey skyrbar og Djúsí. N1 bauð viðskiptavinum sínum í heimsókn í dag til að leyfa þeim að gæða sér á hinum ýmsu réttum sem þessir staðir bjóða upp á. Hjá Ísey skyrbar er hægt að fá allskonar heilsusafa og skyrrétti og Djúsí er með mikið úrval af safa og samlokum. Þetta er annar staðurinn sem N1 opnar á landsbyggðinni með þessu sniði en fyrir þremur vikum var opnað í Hveragerði og líklegt að fleiri staðir fylgi í kjölfarið.\r\n\r\nAð sögn Magnúsar Fjeldsted, rekstrarstjóra N1 í Borgarnesi, var ætlunin að opna þessa staði í vor en mikil seinkun hafi orðið vegna ýmissa þátta. Kórónufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á allt hvað varðar útlönd, allt gengur miklu hægar fyrir sig og erfitt að eiga við það. Allur tölvubúnaðurinn í kæli- og frystieiningarnar kom ekki á tilætluðum tíma og þá voru mikil vandræði með gáma og þess háttar.\r\n\r\nMagnús segir einnig að þessar nýju tvær einingar séu frábær viðbót við það sem fyrir er, eins og rétt dagsins í hádeginu, pizzur og annan skyndibita. Þá segir hann að starfsfólki fjölgi talsvert með opnun þessara staða, alls væri búið að þjálfa átta starfsmenn í þessi nýju störf og gert ráð fyrir að næsta sumar verði 16-18 starfsmenn að vinna á þessum tveimur stöðum. Það þýðir að alls verða starfsmenn stöðvarinnar orðnir um 60 næsta sumar og það stefni í að N1 í Borgarnesi verði einn stærsti vinnustaðurinn á svæðinu.\r\n\r\nÞegar blaðamaður Skessuhorns kíkti í heimsókn í hádeginu í dag var fjöldi fólks á staðnum og ekki annað að sjá en að veitingarnar rynnu ljúflega niður enda hollustan í fyrirrúmi.\r\n\r\n[gallery size=\"large\" ids=\"49493,49495,49496\"]\r\n\r\n ",
"innerBlocks": []
}
N1 í Borgarnesi opnar Ísey skyrbar og Djúsí frá Blackbox - Skessuhorn