Ísteka riftir samningum við nokkra bændur

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Í myndskeiði sem dýraverndarsamtökin Animal Welfare Foundation/ Tierschutzbund Zürich birtu í nóvember á streymisveitum sáust dæmi um ólíðandi meðferð á hryssum hjá samstarfsbændum líftæknifyrirtækisins Ísteka, sem vinnur hormón úr blóði fylfullra hryssa. Nú hefur Ísteka sent frá sér tilkynningu vegna málsins. Þar segir m.a: „Þessi meðferð á dýrunum var augljóslega brot á velferðarsamningum fyrirtækisins og viðkomandi bænda. Samningum við þá hefur því verið rift.“\r\n\r\nEkki er tekið fram í tilkynningunni hversu mörgum samningum við bændur hefur verið rift. Á þessu ári hefur Ísteka átt í samstarfi við 119 bændur um blóðgjafir hryssa til lyfjaframleiðslu. „Gerðir eru bæði viðskiptasamningar og sérstakir velferðarsamningar við þá alla. Blóðgjöf til lyfjaframleiðslu er eina búgreinin á Íslandi þar sem slíkir samningar eru regla. Reynslan sýnir að bændur vinna almennt samkvæmt þeim,“ segir í tilkynningu fyrirtækisins.\r\n\r\n„Allar blóðgjafir eru framkvæmdar af dýralæknum og starfsemin er undir eftirliti Matvælastofnunar og fyrirtækisins sjálfs þar sem starfar sérstakur dýravelferðarfulltrúi. Rannsóknir sýna að hryssunum verður ekki meint af blóðgjöfunum. En þrátt fyrir að regluverk um blóðgjafir sé strangt og eftirlit mjög mikið er ljóst að óviðeigandi frávik geta komið upp. Slíkt er ekki liðið af hálfu Ísteka og samningum við bændur er rift ef ekki er staðið við þá. Að auki hefur Ísteka ákveðið að ráðast í umfangsmiklar umbætur á eftirliti fyrirtækisins með blóðgjöfum sem unnin er í nánu samstarfi við sérfræðinga á sviði búfjárhalds og dýravelferðar. Meginatriði þeirrar umbótaáætlunar felast meðal annars í aukinni fræðslu og þjálfun fyrir samstarfsbændur, fjölgun velferðareftirlitsmanna sem framvegis verða viðstaddir allar blóðgjafir og myndavélaeftirliti með öllum blóðgjöfum.“\r\n\r\nLoks segir í tilkynningu Ísteka að með þessu vonist forsvarsmenn fyrirtækisins til þess að ólíðandi frávik varðandi dýravelferð í blóðgjöf hryssna á Íslandi endurtaki sig ekki. Nánari upplýsingar um starfsemi líftæknifyrirtækisins Ísteka er að finna á vefsíðunni <a href=\"http://www.isteka.is\">www.isteka.is</a>.",
  "innerBlocks": []
}
Ísteka riftir samningum við nokkra bændur - Skessuhorn