Allt annað er að sjá gluggana eftir viðgerðina. Ljósm. vaks.

„Það er gott að eiga góða að“

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Hallgrímskirkja í Saurbæ á Hvalfjarðarströnd var reist af íslensku þjóðinni til minningar um séra Hallgrím Pétursson. Kirkjan er fögur og vönduð bygging og í alla staði hið prýðilegasta guðshús.\r\n\r\nFyrir nokkru var lokið við að gera við glerið í steindum gluggum kirkjunnar, en þeir eru eftir Gerði Helgadóttur. Blaðamaður Skessuhorns ákvað að skoða málið betur og hitti að máli Jón Valgarðsson, formann sóknarnefndar Saurbæjarsóknar, í kirkjunni í síðustu viku. Jón segir að upphafið á þessu verkefni hafi verið í september fyrir rúmu ári síðan, en þá hafi Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf. sett sig í samband við þau í sóknarnefndinni og sóknarprestinn og sýnt áhuga fyrir því að það yrði skoðað með viðgerðir á gluggunum: „Þá hafði hann komið hingað með sérfræðingi frá þeirri verksmiðju sem gerði gluggana í upphafi og komið með hann hingað til að skoða gluggana. Það var hans álit að það þyrfti að taka þetta allt í gegn. Gluggarnir komu í kirkjuna árið 1965 og ekkert hefur verið gert með þá síðan. Kristján hafði mikinn áhuga fyrir því að þetta yrði gert og að hans frumkvæði var drifið í því að hafa samband við þessa menn. Þessi maður sem kom og skoðaði þetta var frá þessari verksmiðju sem framleiddi þetta í upphafi en það er fjölskyldufyrirtæki sem er búið að starfa í marga ættliði. Sá sem er í forsvari þarna núna er afkomandi þeirra Fritz og Ludovikus Oidtmann sem framkvæmdu verkið í upphafi og heitir Stefan. Nema hvað að síðan er ákveðið að fara í þetta í samráði við þessa aðila í Þýskalandi og fyrstu dagana í júlí í sumar komu tveir menn, sérfræðingar frá Þýskalandi, og tóku alla gluggana úr. Bjuggu um þá og pökkuðu þeim saman í sérstakar kistur sem þeir eru með og allt var flutt til Þýskalands í viðgerð. Glerið var allt óskemmt en það þurfti að gera allt upp og þá gerðu þeir meira og minna við allt blýið sem heldur þessu saman.\r\n\r\n<em>Sjá ítarlega frásögn í Skessuhorni vikunnar.</em>\r\n\r\n&nbsp;",
  "innerBlocks": []
}
„Það er gott að eiga góða að“ - Skessuhorn