
Laust eftir miðnætti, aðfararnótt fimmtudags í síðustu viku barst lögreglu tilkynning um rásandi aksturslag bifreiðar á leið um Hvalfjarðargöng. Lögreglumenn af Akranesi óku til móts við ökumanninn og stöðvuðu hann. Reyndist bíllinn vera ljóslaus, ökumaður án réttinda og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sagðist ökumaður hafa verið að kaupa bílinn. Það reyndist ekki rétt…Lesa meira








