Akurey landaði tæpum tvö hundruð tonnum

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Akurey AK 10, skuttogari Brims hf., kom til hafnar í Grundarfirði í gær til löndunar á 195 tonnum. Uppistaðan í aflanum var slægður þorskur, eða tæp 156 tonn, tæp 18 tonn voru af karfa og sitt lítið af öðrum tegundum. Er þetta þriðja löndun Akureyjar í Grundarfirði á stuttum tíma en skipið er gert út á botnvörpu. Eins og fram kom í Skessuhorni í síðustu viku er mikið um að vera í Grundarfjarðarhöfn þessa dagana og líflegt þegar fjöldi skipa auk skipa útgerðarfélaganna á staðnum landa þar afla.",
  "innerBlocks": []
}
Akurey landaði tæpum tvö hundruð tonnum - Skessuhorn