Próflaus stal sama bílnum tvisvar

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Laust eftir miðnætti, aðfararnótt fimmtudags í síðustu viku barst lögreglu tilkynning um rásandi aksturslag bifreiðar á leið um Hvalfjarðargöng. Lögreglumenn af Akranesi óku til móts við ökumanninn og stöðvuðu hann. Reyndist bíllinn vera ljóslaus, ökumaður án réttinda og grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. Sagðist ökumaður hafa verið að kaupa bílinn. Það reyndist ekki rétt heldur hafði bílnum verið stolið. Var hann handtekinn og fór mál hans hefðbundna leið. Ökumaður baðst gistingar í fangaklefa og þegar hann reis úr rekkju daginn eftir tók hann hinn stolna bíl traustataki á ný og ók á brott.  Lögreglumenn veittu honum eftirför, handtóku hann og verður hann ákærður fyrir öll brotin í tvígang.",
  "innerBlocks": []
}
Próflaus stal sama bílnum tvisvar - Skessuhorn