{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Körfuknattleiksfélag ÍA hefur boðað til aðalfundar félagsins 2. janúar næstkomandi. Nú ber svo við að núverandi stjórn, sem er skipuð þeim Jóni Þór Þórðarsyni, Hannibal Haukssyni og Jónasi H. Ottóssyni, ætlar ekki að gefa kost á sér áfram. Því auglýsir stjórn félagsins eftir ferskum og þróttmiklum aðilum til að taka félagið enn lengra. Félagið hefur verið ört vaxandi, er fjárhagslega í ágætu jafnvægi og á bjarta framtíð. Þeir sem hafa áhuga eru hvattir til að setja sig í samband við Guðmundu Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra ÍA, á netfangið gudmunda@ia.is fyrir 15. desember nk. Konur eru sérstaklega hvattar til að gefa kost á sér en stjórn félagsins hefur eingöngu verið skipuð körlum undanfarin ár.",
"innerBlocks": []
}
Leita að fólki í stjórn körfuboltafélagsins - Skessuhorn