Eftir afhjúpun söguskiltisins. F.v. Brynja Þorbjörnsdóttir formaður menningar- og markaðsnefndar Hvalfjarðarsveitar, Halldór Blöndal, Linda Björk Pálsdóttir sveitarstjóri og Haraldur Benediktsson bóndi á Vestra Reyni.

Söguskilti afhjúpað og jólabasar í Miðgarði

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Það var sannkölluð aðventustemning í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit um helgina. Þar var við hátíðlega athöfn á laugardaginn afhjúpað annað af tíu söguskiltum sem sett verða upp í verkefninu Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit. Það fyrsta var afhjúpað við Saurbæ í haust. Söguskiltin eru framlag Hvalfjarðarsveitar í samstarfi þriggja sveitarfélaga við Hvalfjörð; Kjósarhrepps, Hvalfjarðarsveitar og Akraneskaupstaðar og gengur út á þróun ferðaleiðar um Hvalfjörð, en það verkefni er leitt af Markaðsstofu Vesturlands.\r\n\r\nAthöfnin hófst með ávarpi Lindu Bjarkar Pálsdóttur sveitarstjóra sem sagði frá söguskiltinu; tilurð þess og efnistökum. Á skiltinu er farið yfir sögu Jóns Hreggviðssonar, Péturs Ottesen, Ytra-Hólms og Innri-Hólms ásamt kirkjunnar á Innri-Hólmi. Það var síðan Halldór Blöndal fyrrverandi alþingismaður og ráðherra sem fékk heiðurinn af afhjúpun skiltisins, en flutti auk þess ávarp. Þar fór hann m.a. yfir fyrstu kynni sín af svæðinu, en hann var ungur að árum starfsmaður í Hvalstöðinni hvar hann starfaði í alls tuttugu sumur við hvalskurð. Þá ræddi hann um Pétur Ottesen þingmann Borgfirðinga sem hann telur ótvírætt vera einn merkasta alþingismann í sögu lýðveldisins. Að lokinni afhjúpun var farið inn en þar minntist Haraldur Benediktsson á Vestra-Reyni Jóns Hreggviðssonar og fór yfir viðburðaríka sögu þessa umdeilda manns.\r\n\r\nAð lokinni dagskrá sveitarstjórnar hófst dagskrá í félagsheimilinu þar sem Kirkjukór Saurbæjarprestakalls söng nokkur jólalög undir stjórn og undirleik Zsuzsanne Budai. Því næst hófst jólamarkaður þar sem selt var gegn vægu gjaldi ýmiskonar handverk, sultur, bakkelsi, broddur og fleira. Auk þess var kaffisala. Markaðurinn var opinn bæði laugardag og sunnudag. Allur ágóði af sölunni fer til fjármögnunar viðgerða á Innra-Hólmskirkju en 130 ára afmælis hennar verður minnst á næsta ári. Viðgerðum á kirkjunni hefur miðað vel á þessu ári.\r\n\r\n<em>Sjá nánar í Skessuhorni sem kemur út á morgun.</em>",
  "innerBlocks": []
}