{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Gestastofa Þjóðgarðsins í Malarrifi á Snæfellsnesi er komin með fastagest. Það er refur sem landverðirnir eru farnir að kalla Gest. Hefur hann verið að láta sjá sig af og til í haust og það sem af er vetri. Ekki skemmir það fyrir að Gestur hefur einnig stillt sér upp fyrir myndatöku. Landverðirnir vilja koma því á framfæri að halda þarf fjarlægð við refinn og önnur villt dýr þegar fólk sér þau, alls ekki elta þau ekki uppi eða hræða. Mikilvægt er sömuleiðis að gefa þeim ekki mat.",
"innerBlocks": []
}