
Andrea frá Össu afhendir Þórði lækni gjafabréfið.
Ný tæki hjá Heilsugæslunni í Búðardal og á Reykhólum
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Undanfarið hefur Heilsugæslan í Búðardal og á Reykhólum, í samstarfi við Lionsklúbbinn í Dölum og Reykhólahreppi, safnað peningum til kaupa á Vscan Air tæki og spjaldtölvu en frá þessu er sagt á vef Reykhólahrepps. Tækin eru keypt fyrir gjafafé eingöngu en þau kosta rúmlega eina milljón króna. Þetta Vscan tæki er létt og meðfærilegt sónartæki sem tengist snjallsíma eða spjaldtölvu og er þægilegt að grípa með í sjúkravitjanir og útköll. Með tækinu er auðveldara fyrir lækni að meta ástand sjúklings og greina innvortis áverka eða sjúkdóma.\r\n\r\nHandverksfélagið Assa í Reykhólahreppi hefur um árabil starfrækt nytjamarkað samhliða handverksmarkaðnum og alltaf hefur verið nokkur ágóði af honum sem runnið hefur til góðra málefna á svæðinu. Að þessu sinni var ákveðið að afhenda Heilsugæslunni ágóðann, 160 þúsund krónur, sem framlag til kaupa á áðurnefndu tæki.\r\n\r\n[caption id=\"attachment_49210\" align=\"alignleft\" width=\"224\"]<img class=\"wp-image-49210\" src=\"https://skessuhorn.is/wp-content/uploads/2021/11/Ny-taeki-hja-Heilsugaeslunni-i-Budardal-og-Reykholum2-600x400.jpg\" alt=\"\" width=\"224\" height=\"149\" /> Ingveldur, Þórunn, Þórður og Einar við nýja sjúkrabílinn.[/caption]\r\n\r\nÞórður Ingólfsson, læknir í Búðardal, tók við gjöfinni síðasta laugardag úr hendi Andreu Björnsdóttur gjaldkera handverksfélagsins. Við það tilefni upplýsti hann að söfnunarupphæðin væri komin upp í andvirði tækisins og næsta mál væri að ganga frá kaupunum. Ásamt Þórði komu frá Heilsugæslunni Ingveldur Guðmundsdóttir, Þórunn Björk Einarsdóttir og Einar Jón Geirsson sjúkrabílstjóri en þau komu á glænýjum sjúkrabíl sem kom fyrir rúmri viku í Búðardal. Þá er annar eldri sjúkrabíll í góðu standi einnig í Búðardal og því hægt að segja að Heilsugæslan í Búðardal sé í góðum málum að vera með tvo öfluga sjúkrabíla á sínum snærum.",
"innerBlocks": []
}