Fréttir

true

Gestarefurinn Gestur í Malarrifi

Gestastofa Þjóðgarðsins í Malarrifi á Snæfellsnesi er komin með fastagest. Það er refur sem landverðirnir eru farnir að kalla Gest. Hefur hann verið að láta sjá sig af og til í haust og það sem af er vetri. Ekki skemmir það fyrir að Gestur hefur einnig stillt sér upp fyrir myndatöku. Landverðirnir vilja koma því…Lesa meira

true

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar heldur tvenna jólatónleika

Hljómlistarfélag Borgarfjarðar stendur fyrir árlegum jólatónleikum félagsins fimmta árið í röð fimmtudaginn 9. desember næstkomandi. Að þessu sinni verða tvennir jólatónleikar haldnir í Hjálmakletti í Borgarnesi. Aðalgestur í ár er Sigríður Beinteinsdóttir en auk hennar fleiri góðir gestir, innan héraðs sem utan. „Við gerum ráð fyrir því að svo stöddu að allir tónleikagestir þurfi að…Lesa meira

true

Akurey landaði tæpum tvö hundruð tonnum

Akurey AK 10, skuttogari Brims hf., kom til hafnar í Grundarfirði í gær til löndunar á 195 tonnum. Uppistaðan í aflanum var slægður þorskur, eða tæp 156 tonn, tæp 18 tonn voru af karfa og sitt lítið af öðrum tegundum. Er þetta þriðja löndun Akureyjar í Grundarfirði á stuttum tíma en skipið er gert út…Lesa meira

true

Grundfirðingurinn Adam Ingi sló í gegn með liði Gautaborgar

Hinn 19 ára gamli Adam Ingi Benediktsson, markvörður frá Grundarfirði, lék sinn fyrsta leik í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með stórliði IFK Gautaborgar á sunnudaginn og sló strax í gegn hjá stuðningsmönnum liðsins. Þetta kemur fram í grein Göteborgs-Posten um Adam Inga þar sem sagt er að sérstakur kollhnís Adams Inga fyrir leik að eigin…Lesa meira

true

Söguskilti afhjúpað og jólabasar í Miðgarði

Það var sannkölluð aðventustemning í félagsheimilinu Miðgarði í Hvalfjarðarsveit um helgina. Þar var við hátíðlega athöfn á laugardaginn afhjúpað annað af tíu söguskiltum sem sett verða upp í verkefninu Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit. Það fyrsta var afhjúpað við Saurbæ í haust. Söguskiltin eru framlag Hvalfjarðarsveitar í samstarfi þriggja sveitarfélaga við Hvalfjörð; Kjósarhrepps, Hvalfjarðarsveitar…Lesa meira

true

Ný tæki hjá Heilsugæslunni í Búðardal og á Reykhólum

Undanfarið hefur Heilsugæslan í Búðardal og á Reykhólum, í samstarfi við Lionsklúbbinn í Dölum og Reykhólahreppi, safnað peningum til kaupa á Vscan Air tæki og spjaldtölvu en frá þessu er sagt á vef Reykhólahrepps. Tækin eru keypt fyrir gjafafé eingöngu en þau kosta rúmlega eina milljón króna. Þetta Vscan tæki er létt og meðfærilegt sónartæki…Lesa meira

true

Mannamót í Stúkuhúsinu Görðum

Föstudaginn 3. desember klukkan 19 mun Guðmundur R Lúðvíksson, matreiðslu- og myndlistarmaður opna myndlistarsýningu ásamt því að flytja örtónleika í Stúkuhúsinu við Byggðasafnið í Görðum á Akranesi. Á sýningunni, sem nefnist „Mannamót“ verða um 40 pennateikningar. Við opnun sýningarinnar mun hann jafnframt flytja nokkur frumsamin lög með aðstoð góðra manna af Akranesi. Þar munu þeir…Lesa meira

true

Fer með kosningamálið í NV til Strassburgar

Magnús D Norðdahl lögfræðingur og oddviti Pírata í NV kjördæmi fyrir kosningarnar í haust, hefur ákveðið að fara með kosningamálið í Norðvesturkjördæmi til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassburg. „Uppspretta valdsins í okkar samfélagi er í þingkosningum. Löggjafarvaldið velur hverjir fara með framkvæmdarvald sem síðan skipar þá sem fara með dómsvald. Heilindi kerfisins í heild eru því…Lesa meira

true

Urðu Norðurlandameistarar í hópkata

Kristrún Bára Guðjónsdóttir hjá Karatefélagi Akraness varð Norðurlandameistari í hópkata um helgina ásamt þeim Móeyju Maríu Sigþórsdóttur McClure frá Breiðabliki og Freyju Stígsdóttur frá Þórshamri. Mótið var haldið í Stavanger í Noregi. Ísland hefur einu sinni áður unnið til Norðurlandameistaratitils í liðakeppni, en það var árið 2012.Lesa meira

true

Aukin áhersla á skólamál í sameiningarferli tveggja sveitarfélaga

Samstarfsnefnd um sameiningu Eyja- og Miklaholtshrepps og Snæfellsbæjar hefur skilað áliti sínu til sveitarstjórnanna og munu þær koma saman í þessari viku og taka til fyrri umræðu. Í tilkynningu frá nefndinni kemur fram að brugðist hafi verið við þeim 56 ábendingum sem bárust í kjölfar samráðsfundar sem fram fór á Breiðabliki 16. nóvember sl. „Flestar…Lesa meira