Fréttir

true

Vinnuvernd hvetur til inflúensubólusetningar

Fyrirtækið Vinnuvernd bendir á að í ljósi aðstæðna og mikils fjölda í Covid örvunarbólusetningum þessa dagana virðist sem hlutfall þeirra sem þiggja inflúensubólusetningu sé lægra nú miðað við undanfarin ár. „Heilbrigðisyfirvöld hafa hvatt fólk til þess að láta bólusetja sig því búast má við því að Inflúensan í ár gæti orðið einkar skæð þar sem…Lesa meira

true

Húnvetningar fara óvenjulega leið til að knýja á um vegagerð

Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur farið afar óvenjulega leið til að fjármagna og ýta við stjórnvöldum um vegagerð um Vatnsnesveg. Hafin er hópfjármögnun á Karolinafund vegna framkvæmda við veginn. Segir sveitarstjórn óásættanlegt að vegurinn sé ekki á samgönguáætlun fyrr en á árunum 2030 til 2034 og því hafi verið ákveðið að fara þessa leið. Vatnsnesvegur hefur…Lesa meira

true

Söguskilti afhjúpað við Miðgarð í Hvalfjarðarsveit

Halldór Blöndal fyrrverandi alþingismaður og ráðherra mun afhjúpa söguskilti við félagsheimilið Miðgarð, laugardaginn 27. nóvember næstkomandi kl. 12:00. Á skiltinu er farið yfir sögu Jóns Hreggviðssonar, Péturs Ottesen, Ytra-Hólms og Innri-Hólms ásamt Innri-Hólmskirkju. Á vef Hvalfjarðarsveitar segir að þetta sé annað skiltið sem er afhjúpað er í verkefninu Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðarsveit. Það…Lesa meira

true

Fjölmiðlafólk allt í kringum borðið

Það var mikið um að vera í gamla Landsbankahúsinu á Akranesi í dag. Útsendingar Útvarps Akraness hófust klukkan 13 og þegar blaðamann Skessuhorns bar að garði voru fulltrúar allra helstu fjölmiðla landsins mættir til að skrásetja viðburðinn. Elsa María Guðlaugs Drífudóttir, fréttakona RÚV, var mætt til þess að taka viðtal við þau Hlédísi fjölmiðlakonu á…Lesa meira

true

Borgarbyggð skreytir fyrir jólin

Borgarbyggð hefur hafist handa við að setja upp jólaljós og skreytingar í stofnunum og útisvæði sveitarfélagsins. Frá þessu segir á vef Borgarbyggðar en nú er verið að ljúka við að klæða Skallagrímsgarð í jólafötin og verður formlega kveikt á jólatrénu mánudaginn 29. nóvember næstkomandi. Auk þess munu starfsmenn áhaldahússins setja upp götuskreytingar og skreyta jólatréð…Lesa meira

true

Gransöngvari á ferð í Melasveitinni

Á FB síðunni Fuglar á Vesturlandi birtir Elín Ósk Gunnarsdóttir í Belgsholti í Melasveit mynd af smáfugli sem villtist inn til hennar. Í fyrstu hélt hún að um væri að ræða músarindil en líklega var hér á ferðinni fugl sem nefnist gransöngvari. Slíkir fuglar eru einungis 8 grömm að þyngd en samkvæmt Wikipedia eru þetta…Lesa meira

true

Bylgjan líklega búin að ná hámarki í Grundarfirði

Í gærkvöldi voru 48 íbúar greindir með Covid-smit í Grundarfirði og 69 voru í sóttkví. Fjögur ný smit greindust í gær en fólkið var allt í sóttkví. Nú í hádeginu var sagt frá því á vef bæjarins að 42 PCR próf voru tekin í dag og 20 hraðpróf á heilsugæslustöðinni. Öll hraðprófin reyndust neikvæð.  „Í…Lesa meira

true

Jólatrén í Snæfellsbæ skína nú skært

Kveikt var á ljósum jólatrjánna á Hellissandi og í Ólafsvík í morgun með óhefðbundnum viðhöfnum vegna sóttvarna. Búið var að skipta grunnskólanum og leikskólanum á sinn tíma til að ekki kæmu of margir saman í einu. Blíðaskaparveður var þegar athafnirnar fóru fram. Þrír jólasveinar mættu á staðina og Jón Haukur Hilmarsson spilaði á gítar og…Lesa meira

true

Ræddu sjálfbæran og umhverfisvænan landbúnað og matvælaframleiðslu

Landbúnaðarháskóli Íslands og Háskólinn á Bifröst hafa tekið höndum saman um að á Vesturlandi byggist upp nýsköpunar- og þróunarsetur á sviði landbúnaðar, matvælaframleiðslu, sjálfbærni, ferðamála og nýtingu náttúrugæða að leiðarljósi. Byggir þessi vinna meðal annars á sýn Þórdísar Kolbrúnar R Gylfadóttur ráðherra atvinnumála um að þörf sé á því að hér á landi verði til…Lesa meira

true

Ljósin tendruð á jólatrénu á Akratorgi

Í morgun var jólaskemmtun með óhefðbundnu sniði á Akratorgi á Akranesi. Vegna samkomutakmarkana var brugðið á það ráð að bjóða leikskólabörnum í bæjarfélaginu að koma á torgið, ásamt dagforeldrum með þeirra börn. Afmælisbörnin Gunnar Berg og Sylva Sól Styrmisdóttir úr leikskólanum Akraseli fengu þann heiður að tendra ljósin á trénu. Skólakór Grundaskóla söng fjögur lög…Lesa meira