Fréttir

true

Á verðlaunapalli og slógu fjögur Akranesmet

Sundfélag Akraness sendi vaska sveit á Íslandsmeistaramótið í 25 metra laug í sundi sem fram fór í Ásvallalaug um helgina. Árangur unga fólksins frá Akranesi var góður, eða ein silfurverðlaun, fern bronsverðlaun, fjögur Akranesmet og lágmörk í unglingalandslið. Enrique Snær Llorenz vann silfur í 200m fjórsundi á tímanum 2.07.48 sem er sömuleiðis nýtt Akranesmet. Gamla…Lesa meira

true

Unnu til verðlauna á Íslandsmeistaramótinu í klifri

Skagastúlkur voru sigursælar á Íslandsmeistaramótinu í klifri sem fram fór um liðna helgi í Klifurhúsinu í Reykjavík. Keppt var í grjótglímu (e. bouldering) en mótið var fjórða og síðasta mót Íslandsmeistaramótaraðarinnar fyrir árið 2021. Skagamenn voru fjölmennir en tólf klifrarar mættu til leiks fyrir ÍA. Í C- flokki sigraði Þórkatla Þyrí Sturludóttir örugglega með því…Lesa meira

true

Fækkar í hópi smitaðra á Vesturlandi

Nú eru 123 í einangrun með Covid-19 á Vesturlandi, samkvæmt samantekt lögreglu, 33 færri en í gær. Í sóttkví í landshlutanum eru 111. Mest munar um fækkun í einangrun á Akranesi þar sem 100 eru nú í einangrun og 84 í sóttkví. Í Borgarnesi eru tíu í einangrun og annar eins fjöldi í Grundarfirði. Loks…Lesa meira

true

Fækkar í hópi Covid sjúklinga á Vesturlandi

Í gær voru 135 greindir með Covid-19 á landinu öllu, heldur lægri tala en alla daga vikunnar þar á undan. Samkvæmt nýrri samantekt Lögreglunnar á Vesturlandi yfir fjölda smitaðra og í sóttkví í landshlutanum, fækkar um 18 í einangrun milli daga. Nú eru þeir 156 , voru 174 í gær. Í sóttkví er 121. Á…Lesa meira

true

Skallagrímur sigraði Selfoss í hörkuleik

Skallagrímur tók á móti Selfossi í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur náði sínum fyrsta sigri í deildinni gegn Hrunamönnum á dögunum en tapaði síðan gegn liði Hattar frá Egilsstöðum síðasta mánudag. Selfyssingar höfðu fyrir þennan leik unnið fjóra leiki og tapað þremur í deildinni og því sigurstranglegri fyrir fram í leiknum. Skallagrímsmenn…Lesa meira

true

Dúllurnar gáfu bókasafninu heklað jólatré

Dúllurnar er hópur handverkskvenna á Akranesi sem hefur um árabil komið saman og átt dúllustundir á Bókasafni Akraness. Nýverið afhentu dúllurnar bókasafninu glæsilegt jólatré þar sem fjöldi heklaðra dúlla prýðir trégrind sem hefur form jólatrés. Tréð verður framvegis uppi á aðventunni til yndisauka fyrir gesti. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem dúllurnar láta þannig…Lesa meira

true

Varað við hvassviðri við fjöll

Vegagerðin varar við því að í dag er útlit fyrir snarpar vindhviður, 35-40 m/s á Kjalarnesi, og við Hafnarfjall frá um klukkan 12 til 17, en lægir þá heldur. Aftur er svo spáð hvassviðri snemma í nótt með sunnanátt. Þá verður víða hvasst á Snæfellsnesi og norðanlands.Lesa meira

true

Íslenskt hvalkjöt selt í kjötborði í Japan

Borgnesingurinn Jóhann Lind Ringsted býr ásamt konu sinni Ayaka og dótturinni Hönnu í hafnarborginni Sendai í norðurhluta Japan og starfar þar sem kennari. Fjölskyldan kaupir stundum í matinn á markaði sem staðsettur er við höfnina í Sendai. Hluti markaðarins er fiskmarkaður sem tengist beint við höfnina og hefur á boðstólnum nýtt sjávarfang. Verslunin er nýleg…Lesa meira

true

Ekki samstaða um hvort fiskvegur við Barnafoss þurfi að fara í umhverfismat – uppfærð frétt

Sveitarfélaginu Borgarbyggð barst fyrr á árinu ósk frá Skipulagsstofnun um umsögn vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við fiskveg í jarðgöngum við Barnafoss í Hvítá. Umsagnaraðilar málsins eru sveitarfélagið og Umhverfisstofnun. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns í júní síðastliðnum var samþykkt á aðalfundi Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts 1. júní að félagið heimilaði fyrir sitt leyti framkvæmdir…Lesa meira

true

Bjóða út tölvuþjónustu

Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að breyta skipuriti sveitarfélagsins á þann veg að framvegis muni sveitarfélagið kaupa út tölvuþjónustu í stað þess að hafa starfsmann á launum við slíka vinnu á stjórnsýslu- og þjónustusviði. Farið verður í útboð á þjónustunni. Í fundargerð sveitarstjórnar kemur fram að fráfarandi tölvuumsjónarmanni hafi verið sagt upp…Lesa meira