Barnafoss er ofan við Hraunfossa í Hvítá. Ljósm. west.is

Ekki samstaða um hvort fiskvegur við Barnafoss þurfi að fara í umhverfismat – uppfærð frétt

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveitarfélaginu Borgarbyggð barst fyrr á árinu ósk frá Skipulagsstofnun um umsögn vegna fyrirhugaðrar framkvæmdar við fiskveg í jarðgöngum við Barnafoss í Hvítá. Umsagnaraðilar málsins eru sveitarfélagið og Umhverfisstofnun. Eins og fram kom í frétt Skessuhorns í júní síðastliðnum var samþykkt á aðalfundi Veiðifélags Hvítár og Norðlingafljóts 1. júní að félagið heimilaði fyrir sitt leyti framkvæmdir á vatnasvæði félagsins með það að markmiði að fiskur gæti gengið í Norðlingafljót. Lengi höfðu verið fyrirætlanir í þessa veru og niðurstaða þeirrar vinnu meðal annars sú að um aldamótin síðustu var hannaður fiskvegur í jarðgöngum við Barnafoss. Þessi samþykkt aðalfundar veiðifélagsins í sumar fól í sér að látið verður reyna á að afla nauðsynlegra leyfa til að fara í slíka framkvæmd. Um leið yrði til ein fallegasta veiðiá landsins með náttúrulegum laxastofni, þ.e. Norðlingafljót. Á fjórða tug jarða eru á félagssvæði veiðifélagsins sem nær frá ármótum við Reykjadalsá og upp á Arnarvatnsheiði.\r\n\r\nTvær nefndir á vegum Borgarbyggðar hafa haft málið til umsagnar, en það hefur ekki verið formlega afgreittt úr sveitarstjórn. Skipulags- og byggingarnefnd afgreiddi umsögn um hvort leyfið skyldi háð mati á umhverfisáhrifum á fundi sínum 5. nóvember síðastliðinn. Í bókun nefndarinnar segir að svæðið sem um ræðir sé friðlýst og því hafi þótt eðlilegt að umhverfis- og landbúnaðarnefnd fjallaði einnig um málið. Á fundi umhverfis- og landbúnaðarnefndar taldi meirihluti nefndarinnar að framkvæmdin ætti að fara í mat á umhverfisáhrifum skv. lögum nr. 111/2021 en minnihlutinn taldi svo ekki vera miðað við framlögð gögn og skýrslur. Var því ósk Skipulagsstofnunar um mat sveitarfélagsins á því hvort fyrirhuguð framkvæmd eigi að fara í umhverfismat, lögð fyrir skipulags- og byggingarnefnd að nýju.\r\n\r\nÍ bókun af fundi skipulags- og byggingarnefndar segir: „Hraunfossar og Barnafoss eru innan verndarsvæðis, friðlýstar náttúruminjar á Náttúruminjaskrá og skilgreindar í Aðalskipulagi Borgabyggðar 2010-2022 (NF4). Aðdráttarafl svæðisins er mikið hvað varðar ferðamenn og gesti og telur sveitarfélagið það lykilatriði að gildi og staða svæðisins rýrni ekki. Skipulags- og byggingarnefnd telur að umrædd framkvæmd, eins og hún er sett fram í meðfylgjandi gögnum, hafi ekki neikvæð áhrif á ofangreinda þætti og því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Þau leyfi sem framkvæmdaraðili þarf að afla sér og eru á hendi sveitarfélagsins er framkvæmdaleyfi og stöðuleyfi.“ Meirihluti nefndarinnar greiddi atkvæði með því að umrædd framkvæmd þyrfti ekki að fara í umhverfismat. Tveir nefndarmanna sátu hjá við afgreiðsluna, þ.á.m. formaður nefndarinnar Guðmundur F Kristbergsson.\r\n\r\nFundargerðir nefndanna voru lagðar fyrir sveitarstjórn Borgarbyggðar á fundi síðastliðinn fimmtudag, en voru ekki ræddar eða afgreiddar sérstaklega.  Við framlagningu fundargerðarinnar lagði Guðmundur F Kristbergsson fram bókun þar sem hann segir m.a.: „Ljóst er orðið að ólíkar skoðanir eru uppi en málið hefur fengið umsögn hjá umhverfis- og landbúnaðarnefnd þar sem meirihluti nefndarinnar telur framkvæmdina þurfa umhverfismat. Í umsögn skipulags- og byggingarnefnd telur meirihluti nefndarinnar að umrædd framkvæmd sé ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Undirritaður er þeirrar skoðunar að varlega skuli fara á svæði sem þessu. Barnafoss og umhverfi hans er undurfagurt og hefur mikið aðdráttarafl og þar með mikið gildi fyrir sveitarfélagið. Telur undirritaður að ekki ríki sú samstaða um verkefnið og látið er í ljósi vaka í gögnum málsins. Bent hefur verið á ýmsa þætti sem fjalla má betur um, til dæmis áhrif á núverandi lífríki, að rannsaka þurfi jarðfræði svæðisins betur, áhrif flóða og þurrka í ánni og áhrif framburðar. Með hagsmuni sveitarfélagsins að leiðarljósi og hliðsjón af þeim óvissuþáttum sem bent hefur verið á telur undirritaður að framkvæmdin beri að fara umhverfismat.“\r\n\r\nNiðurstöður fastanefnda Borgarbyggðar, þ.e. umhverfis- og landbúnaðarnefndar og skipulags- og byggingarnefndar, hafa verið sendar Skipulagsstofnun.\r\n\r\n<strong>_______________________</strong>\r\n\r\n<em>Ath.s. ritstjóra vegna fréttarinnar sem birtist fyrst hér á vefnum síðdegis 12.11: Við fyrstu vinnslu fréttarinnar skildi blaðamaður málið með þeim hætti að sveitarstjórn hafi samþykkt afgreiðslu skipulags- og byggingarnefndar og tekið þannig afstöðu til þess að fiskgöng þurfi ekki að sæta umhverfismati. Að sögn Lilju B Ágústsdóttur forseta sveitarstjórnar er hið rétta að sveitarstjórn afgreiddi málið ekki frá sér með formlegum hætti. Eftir standa því tvær ósamhljóða niðurstöður tveggja nefnda um sama mál. Í báðum nefndum klofnuðu nefndarmenn í afstöðu sinni. Beðist er velvirðingar á þessari mistúlkun, og er fréttin hér að ofan leiðrétt m.t.t. þessara ábendinga. -mm</em>",
  "innerBlocks": []
}
Ekki samstaða um hvort fiskvegur við Barnafoss þurfi að fara í umhverfismat - uppfærð frétt - Skessuhorn