
Bryan Battle var drjúgur fyrir Skallagrím gegn Selfossi. Ljósm. glh
Skallagrímur sigraði Selfoss í hörkuleik
{
"name": "core/freeform",
"attributes": [],
"saveContent": "Skallagrímur tók á móti Selfossi í 1. deild karla í körfuknattleik í gærkvöldi. Skallagrímur náði sínum fyrsta sigri í deildinni gegn Hrunamönnum á dögunum en tapaði síðan gegn liði Hattar frá Egilsstöðum síðasta mánudag. Selfyssingar höfðu fyrir þennan leik unnið fjóra leiki og tapað þremur í deildinni og því sigurstranglegri fyrir fram í leiknum. Skallagrímsmenn létu þessar fortölur ekkert á sig fá, mættu óhræddir til leiks og unnu að lokum nauman sigur. Leikurinn var í járnum í fyrsta leikhluta, liðin skiptust á að hafa forystu og staðan eftir leikhlutann 22:18 heimamönnum í vil. Í öðrum leikhluta var baráttan áfram í algleymingi, varnarleikur liðanna gloppóttur á köflum en staðan í hálfleik 45:43 fyrir Skallagrím.\r\n\r\nUm miðjan þriðja leikhluta tók Skallagrímur mikinn kipp, breytti stöðunni úr 52:53 í 70:61 á aðeins fimm mínútum og kominn með góða forystu fyrir síðasta leikhlutann. Í honum var Bryan Battle ansi drjúgur fyrir heimamenn, gerði gæfumuninn og skoraði 18 stig. Þó að Selfoss hafi náð að minnka muninn í aðeins eitt stig þegar mínúta var eftir þá setti Bryan Battle niður síðustu fimm stigin og eftir spennandi lokamínútur var niðurstaðan sterkur sigur Skallagríms, 83:77.\r\n\r\nStigahæstir hjá Skallagrími í leiknum voru þeir Bryan Battle með 29 stig og 14 fráköst, Simon Kovac var með 15 stig og 18 fráköst og þeir Davíð Guðmundsson, Arnar Smári Bjarnason og Marinó Þór Pálmason með 9 stig hver. Hjá Selfossi var Trevon Evans með 27 stig, Gasper Rojko með 20 stig og 11 fráköst og Vito Smojer með 15 stig.\r\n\r\nNæsti leikur Skallagríms er frestaður leikur gegn Skagamönnum sem verður næsta þriðjudag í Íþróttahúsinu við Vesturgötu á Akranesi og hefst Vesturlandsslagurinn stundvíslega klukkan 19.15.",
"innerBlocks": []
}