Bjóða út tölvuþjónustu

{
  "name": "core/freeform",
  "attributes": [],
  "saveContent": "Sveitarstjórn Borgarbyggðar samþykkti á fundi sínum í gær að breyta skipuriti sveitarfélagsins á þann veg að framvegis muni sveitarfélagið kaupa út tölvuþjónustu í stað þess að hafa starfsmann á launum við slíka vinnu á stjórnsýslu- og þjónustusviði. Farið verður í útboð á þjónustunni. Í fundargerð sveitarstjórnar kemur fram að fráfarandi tölvuumsjónarmanni hafi verið sagt upp störfum og ekki óskað krafta hans á uppsagnarfresti. Til að brúa bilið þar til verkefnið hefur verið boðið út samþykkti sveitarstjórn jafnframt að gengið yrði til samninga við aðila sem sérhæfa sig í tölvuumsjón, til þess að ganga inn í starf tölvuumsjónarmanns.",
  "innerBlocks": []
}
Bjóða út tölvuþjónustu - Skessuhorn